sunnudagurinn 17. febrúar 2008

Pokasjóður - umsóknarfrestur til 7. mars

Sjálfboðavinna í Félagsheimilinu á Hólmavík - ljósm. Sögusmiðjan
Sjálfboðavinna í Félagsheimilinu á Hólmavík - ljósm. Sögusmiðjan

Pokasjóður verslunarinnar sem áður hét Umhverfissjóður verslunarinnar hefur verið starfræktur frá árinu 1995. Frá þeim tíma hefur sjóðurinn úthlutað samtals um það bil 500 milljónum til verkefna á sviði umhverfismála, menningar, íþrótta og mannúðarmála. Að sjóðnum standa um 160 verslanir um land allt. Gera má ráð fyrir að árleg upphæð úthlutunar úr Pokasjóði sé nú í kringum 100 milljónir. Fjölmörg vestfirsk menningarverkefni hafa fengið styrki úr Pokasjóði í gegnum tíðina.

Sótt er um á vefnum www.pokasjodur.is, en með umsókn til Pokasjóðsins skal fylgja ítarleg lýsing á því verkefni sem sótt er um fé til, framkvæmdaáætlun, kostnaðaráætlun og hvernig fjárstyrknum verður varið ef til úthlutunar kemur.

föstudagurinn 15. febrúar 2008

Menningarráð auglýsir eftir styrkumsóknum 2008

Prestbakkakirkja í Hrútafirði - ljósm. Sögusmiðjan
Prestbakkakirkja í Hrútafirði - ljósm. Sögusmiðjan
Menningarráð Vestfjarða hefur nú auglýst eftir styrkumsóknum vegna fyrri úthlutunar ráðsins til menningarverkefna árið 2008, en ætlunin er að úthluta styrkjum í apríl og október á þessu ári. Umsóknarfrestur er til föstudagsins 14. mars næstkomandi. Í desember á síðasta ári úthlutaði Menningarráðið styrkjum í fyrsta sinn og fengu þá 52 vestfirsk menningarverkefni fjárhagsstuðning til ýmissa góðra verka. Umsækjendur geta verið einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á Vestfjörðum.

Við fyrri úthlutun 2008 hefur Menningarráð Vestfjarða ákveðið að litið verði sérstaklega til menningarverkefna sem fela í sér eftirtaldar áherslur:
   a. Nýsköpun á sviði lista og menningarstarfs.
   b. Verkefni sem miða að fjölgun starfa.
   c. Samstarf milli menningarstofnanna, byggðarlaga eða listgreina og uppsetning viðburða á fleiri en einum stað.
   d. Verkefni sem stuðla að þátttöku barna, unglinga og eldri borgara í listsköpun  og menningarstarfi.
   e. Verkefni sem stuðla að eflingu fagþekkingar á sviði menningar og lista.

Hér á vef Menningarráðs Vestfjarða á slóðinni www.vestfirskmenning.is er að finna allar nánari upplýsingar um verkefnastyrkina, úthlutunarreglur 2008 og yfirlit yfir síðustu úthlutun og eru umsækjendur beðnir um að kynna sér þessar upplýsingar. Þar er einnig að finna rafrænt umsóknarform til að senda umsóknir til ráðsins, en umsókn þarf að innihalda greinargóða lýsingu á verkefnum með verkáætlun, tímasetningum og áætlun um kostnað og gjöld. Á vef Menningarráðsins eru einnig margvíslegar upplýsingar um menningarlíf á Vestfjörðum og starfsemi Menningarráðsins, fréttir af atburðum og tíðindi úr menningarlífinu.

Nánari upplýsingar veitir Jón Jónsson, menningarfulltrúi Vestfjarða, í síma 891-7372 eða netfanginu menning@vestfirdir.is. Menningarfulltrúi gefur þeim sem eftir því leita ráð við gerð styrkumsókna til Menningarráðsins eða í aðra sjóði.
mánudagurinn 11. febrúar 2008

Nýjungar í Listaskóla Rögnvaldar

Vorönn Listaskóla Rögnvaldar Ólafssonar á Ísafirði er nú að hefjast af fullum krafti. Auk hinna hefðbundnu námskeiða, eins og kennslu í vinnukonugripum á gítar og leiklistanámskeiði fyrir börn, mun Pétur Guðmundsson listmálari kenna teiknun og akrílmálum og Nina Ivanova vatnslitun. „Svo verður Einar Kárason rithöfundur með námskeiðið „Leiðarvísir inn í Sturlungu“, sem er mjög spennandi“, segir Margrét Gunnarsdóttir skólastjóri. „Þetta verða fjórar kennslustundir dagana 22.-23. febrúar, en það hefur alls staðar verið yfirfullt á þessi námskeið fyrir sunnan.“

Meðal annarra námskeiða í skólanum má nefna slagverksnámskeið Tuma Jóhannssonar, yoganámskeið Sigrúnar Viggósdóttur, rafgígjukennslu Jóns Hallfreðs Engilbertssonar, stórsveitarnámskeið Írisar Kramer, leirlistarnámskeið Ólafar Bjarkar Oddsdóttur, ballet- og jazzballetnám undir stjórn Katri Manner, að ógleymdri píanókennslunni sem hefur lengst af verið fyrirferðamest í námsskránni. Allar nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðunni edinborg.is.

Þessi frétt er afrituð af www.bb.is.  

mánudagurinn 11. febrúar 2008

Athygli vakin á styrkjafréttum

Nú líður að því að auglýst verði að nýju eftir styrkumsóknum til Menningarráðs Vestfjarða, en ætlunin er að það verði gert nú um miðjan mánuðinn. Jafnframt er vakin athygli á því að fjöldi annarra sjóða hefur auglýst eftir styrkumsóknum og í raun eru ýmsir möguleikar á fjármögnun verkefna opnir allt árið. Hér til hægri, undir tenglinum Styrkir, er hægt að nálgast upplýsingar um ýmsa sjóði og þar eru einnig birtar fréttir af styrkjum.

mánudagurinn 11. febrúar 2008

Ísfirsk tónverk frumflutt

Tvö ný verk ísfirska tónskáldsins Jónasar Tómassonar voru frumflutt á tónlistarhátíð Tónskáldafélags Íslands, Myrkum músíkdögum, sem lauk í gær. Myrkir músíkdagar eru vettvangur fyrir þá margbreytilegu þróun í tónlist sem átt hefur sér stað á undanförnum áratugum en hátíðin stóð í viku. Ísfirska tónskáldið Jónas Tómasson hefur oft átt tónverk á þessari hátíð og að þessu sinni voru fjögur verka hans flutt á hátíðinni, tvö þeirra frumflutt. Verk Jónasar voru flutt af ýmsum tónlistarmönnum og tónlistarhópum, m.a. kammersveitinni Hnúkaþey, Einari Jóhannessyni klarinettuleikara, Douglas Brotchie orgelleikara, Hlíf Sigurjónsdóttur og Sigurlaugu Eðvaldsdóttur fiðluleikurum o.fl.

Frá þessu segir á www.bb.is og www.tonis.is.

Eldri færslur

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« September 2010 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30    
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón