föstudagurinn 14. september 2007

Bolungarvíkurkaupstaður semur við Kómedíuleikhúsið

Bolunarvíkurkaupstaður hefur skrifað undir samning við Kómedíuleikhúsið um skipulagningu viðburða og uppákomur til eins árs. Fær leikhúsið 350 þúsund krónur fyrir. Samningurinn gerir ráð fyrir að Kómedíuleikhúsið taki að sér að skipuleggja og halda utan verkefni  eins og leiksýningar hjá Leikskólanum og Grunnskólanum. Bókmenntadagskrá hjá eldri borgurum, í Náttúrgripasafni Vestfjarða og Ósvör og uppákomur á árlegum bæjarhátíðum eins og Markaðsdegi og Ástarviku.

Frá þessu var greint í Svæðisútvarpi Vestfjarða í dag.
föstudagurinn 7. september 2007

Menningarráð kynnt á Fjórðungsþingi

Gunnar Hallsson afhendir Albertínu Elíasdóttir gjöf frá Menningarráðinu
Gunnar Hallsson afhendir Albertínu Elíasdóttir gjöf frá Menningarráðinu
Menningarráð Vestfjarða var kynnt á Fjórðungsþingi Fjórðungssambands Vestfjarða í morgun. Gunnar Hallsson formaður ráðsins sagði frá aðdragandanum að stofnun ráðsins, þeim samningum sem starfsemi þess byggir á og hvaða væntingar menn hafa um áhrif og störf ráðsins. Ennfremur þakkaði hann Albertínu Elíasdóttir fyrir samstarfið, en hún er að láta af störfum hjá Fjórðungssambandi Vestfjarða og fara til Skotlands til framhaldsnáms. Albertína hefur af miklum dugnaði stýrt undirbúningsvinnunni og færði Gunnar henni þakkarvott frá Menningarráðinu, bókina Vestfirðir eftir Hjálmar Bárðarson.
 
Jón Jónsson nýráðinn menningarfulltrúi hélt einnig erindi þar sem hann kynnti sig fyrir sveitarstjórnarmönnum og öðrum gestum. Hann fjallaði í framsögu sinni um mikilvægi menningarinnar fyrir Vestfirði, þau áhrif sem öflugt menningarlíf getur haft á ímynd svæðisins, mannlíf og atvinnulíf og þar með búsetuþróun á svæðinu.
miðvikudagurinn 15. ágúst 2007

Ráðning menningarfulltrúa Vestfjarða

Jón Jónsson
Jón Jónsson
Á fundi Menningarráðs Vestfjarða 9. ágúst sl. var samþykkt að ráða Jón Jónsson í starf menningarfulltrúa Vestfjarða. Alls bárust 11 umsóknir um starfið.

Jón er með masterspróf í þjóðfræði frá Háskóla Íslands og á að baki mjög fjölbreytta reynslu af rekstri, ráðgjöf og stjórnun verkefna. Hann hefur að undanförnu starfað sem framkvæmdastjóri Sögusmiðjunnar, auk þess að vera ritstjóri héraðsfréttavefjarins strandir.is. Jón er búsettur á Kirkjubóli við Steingrímsfjörð og mun hann hafa starfsaðstöðu á Hólmavík. Jón mun hefja störf hjá Menningarráði Vestfjarða þann 1. september næstkomandi.
mánudagurinn 2. júlí 2007

Auglýst eftir menningarfulltrúa

Minnismerki á Ísafirði
Minnismerki á Ísafirði
Menningarráð Vestfjarða auglýsir starf menningarfulltrúa Vestfjarða. Um er að ræða fullt starf sem komið er á fót í kjölfar nýgerðs menningarsamnings á milli menntamálaráðuneytis, samgönguráðuneytis og sveitarfélaga á Vestfjörðum.

Starfssvið:
·      Dagleg umsýsla fyrir Menningarráð Vestfjarða.
·      Þróunarstarf í menningarmálum á Vestfjörðum.
·      Fagleg ráðgjöf og verkefnastjórnun.
·      Efling samstarfs á sviði menningarmála.
Menntunar- og hæfniskröfur:
·      Háskólapróf eða sambærilegt nám, sem nýtist í starfi.
·      Skipulags- og stjórnunarhæfileikar.
·      Góðir hæfileikar í mannlegum samskiptum.
·      Þekking og reynsla af lista- og menningarstarfi.
·      Góð tölvu- og tungumálakunnátta.

Við leitum að kraftmiklum og metnaðarfullum einstaklingi sem á auðvelt með samskipti við fólk, er vanur sjálfstæðum vinnubrögðum og frumkvæði í störfum.

Vinnutími krefst nokkurs sveigjanleika og starfinu fylgja töluverð ferðalög. Skilyrði er að viðkomandi starfsmaður verði búsettur á Vestfjörðum. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. september 2007. Launakjör eru í samræmi við kjarasamninga BHM.

Umsóknir sendist til Menningarráðs Vestfjarða fyrir 20. júlí nk. Menningarráðið áskilur sér rétt til að framlengja umsóknarfrestinn, ef nauðsyn krefur. Upplýsingar veita formaður menningaráðs Gunnar Hallsson í síma 696 7316, netfang: gunnarhalls@simnet.is og Fjórðungssamband Vestfirðinga í síma 450 3001, netfang: skrifstofa@fjordungssamband.is.
 
mánudagurinn 11. júní 2007

Sveitarfélögin semja um menningarsamstarf

Menn voru fjallkátir með samninginn
Menn voru fjallkátir með samninginn
Í gær, sunnudaginn 10. júní undirrituðu fulltrúar sveitarfélaga á Vestfjörðum samning um samstarf að menningarmálum á Sauðfjársetrinu í Sævangi á Ströndum. Undirritun þessa samnings er lokapunkturinn á samningsgerð milli ríkis og sveitarfélaga á Vestfjörðum um menningarmál á Vestfjörðum. Tilgangur samningsins er sá sami og samstarfssamnings sem þegar hefur verið undirritaður milli ríkis og sveitarfélaga á Vestfjörðum, að efla menningarstarf á svæðinu. 

Mikil kæti ríkti við undirritunina í gær, en formaður stjórnar Fjórðungssambands Vestfirðinga, Anna Guðrún Edvardsdóttir og formaður Menningarráðs Vestfjarða, Gunnar Hallsson, fluttu ávörp. Einnig voru menningaratriði frá hverju samstarfssvæði ásamt veglegu kaffihlaðborði. Elvar Logi Hannesson leikari flutti hluta af einleiknum Skrímsli, vinirnir Halldór Smárason og Halldór Sveinsson fluttu tónlist á píanó og fiðlu og Sigurður Atlason frá Strandagaldri kenndi gestum hvernig draga mætti að sér fé með galdri. Aðalsteinn Óskarsson formaður Fjórðungssambandsins sá um að kynna dagskrána. 
 
Fleiri myndir frá atburðinum má finna undir þessum tengli.
Eldri færslur

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« Mars 2010 »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón