fimmtudagurinn 3. september 2009

Samráðsfundur menningarfulltrúa landshlutanna

Einn af reglulegum samráðsfundum menningarfulltrúa landshlutanna verður haldinn í Eyjafirði dagana 7.-8. september. Menningarfulltrúar landshlutanna hafa fundað reglulega frá 2007 þegar menningarráðum var komið á í öllum landshlutum og unnið saman að margvíslegum málefnum og er þetta annar fundur ársins. Meðal fundarefnis er framtíð menningarsamninga ríkis og sveitarfélaga, en staða flestra menningarráðanna er óviss og óljós frá og með næstu áramótum.

miðvikudagurinn 2. september 2009

Menningarfulltrúi fjallar um sókn í menningarmálum á Fjórðungsþingi

Fimmtugasta og fjórða Fjórðungsþing Vestfirðinga verður sett á Ísafirði kl. 10.30 föstudaginn 4. september næstkomandi.  Helstu umfjöllunarefni þingsins verða framtíðarsýn og sóknaráætlun fyrir Vestfirði, en í tilefni af 60 ára afmæli Fjórðungssambands Vestfirðinga verður þingið að þessu sinni með nokkrum hátíðarbrag, með sérstakri hátíðardagskrá eftir hádegi á föstudag.  


Þingið fer fram í Edinborgarhúsinu, auk þess sem nefndarstörf munu að einhverju leyti fara fram í Háskólasetri Vestfjarða.  Kristján L Möller, samgönguráðherra og Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga munu ávarpa þingið eftir hádegið á föstudag. Meðal fyrirlesara á þinginu eru Claire M. O‘Neill PhD og Dr Lorraine Gray en þær munu fjalla um gerð strandsvæðaskipulags og hvernig móta má nýja framtíðarsýn fyrir landsvæði. 

Þá mun Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi og formaður stýrihóps verkefnis um sóknaráætlun fyrir alla landshluta til eflingar atvinnulífs og lífsgæða til framtíðar fjalla um gerð sóknaráætlunar ríkisstjórnarinnar á laugardagsmorgun. Þá munu Aðalsteinn Óskarsson framkvæmdastjóri Fjórðungssambandsins og Þorgeir Pálsson framkvæmdastjóri AtVest fjalla um sóknaráætlun landshluta, Jón Páll Hreinsson forstöðumaður Markaðsstofu Vestfjarða um sókn í ferðaþjónustu og Jón Jónsson menningarfulltrúi Vestfjarða um sókn í menningarmálum.
 

Þá verður að venju hefðbundin dagskrá, afgreiðsla þingmála og fleira. Dagskrána má nálgast í heild á vef Fjórðungssambands Vestfirðinga, www.fjordungssamband.is.
 

þriðjudagurinn 1. september 2009

Bólu Hjálmar á leið um landið

Stoppleikhópurinn er nú að hefja aftur sýningar á leikritinu um Bólu-Hjálmar en þetta er nýtt íslenskt leikrit byggt á lífi og ljóðum Bólu-HjálmarsSýningin hlaut Grímuverðlaunin fyrr á árinu. Verkið nefnist: "Brunað í gegnum Bólu-Hjálmar" en það var frumsýnt 22 maí 2008 í Iðnó. Hefur það síðan verið á leikferð um landið þar sem sýningar fóru fram bæði í grunnskólum og á hjúkrunarheimilum eldri borgara.

 

Bólu-Hjálmar er nafn sem við höfum öll heyrt. Grunnskólakrakkar vita sennilega flestir að hann var skáld. Þeir sem eldri eru kunna sum ljóðin hans og muna eftir honum af svipmikilli teikningu í gömlu Skólaljóðabókinni - „kallinn með hökuskeggið sem er svo grimmilegur til augnanna". Og þjóðin hampar honum ennþá sem einu af kraftmestu þjóðskáldum sínum fyrr og síðar. Hjálmar var skapmikill orðhákur sem oft kom sér í vandræði og lenti upp á kant við nágranna sína. Hann var öfundaður og rógborinn.  Hann var þjófkenndur og ákærður. Samt virtur og dáður fyrir hæfileika sína og mannkosti. 

Þrír leikarar
segja söguna og leika allar persónur; Hjálmar, eiginkonu hans, móður, börn, föður, uppeldismóður, bændur, presta, sýslumenn, förukonur, nágranna, fjandmenn og vini. Leikritið geymir einnig sýnishorn af kveðskap hans, allt frá því fegursta til andstyggilegustu níðvísna, en fáir voru flinkari í að meitla saman kjarnmikið níð en Hjálmar. 
 

Hægt er að panta leiksýninguna hvert á land sem er og eru leiktjöld/búnaður einföld til uppsetningar.

 

Höfundar handrits og tónlistar: Ármann Guðmundsson, Snæbjörn Ragnarsson, Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggvason.

Leikarar: Eggert Kaaber, Magnús Guðmundsson og Margrét Sverrisdóttir.

Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir.

Leikmynd og búningar: Guðrún Öyahals.

 

Verð sýningar er: 54,000 kr.  Sýningartími: 45 mínútur.  www.stoppleikhopurinn.com.

sunnudagurinn 28. júní 2009

Aðalfundur Menningarráðs Vestfjarða

Aðalfundur Menningarráðs Vestfjarða verður haldinn á skrifstofuhótelinu í Neista á Ísafirði þriðjudaginn 30. júní og hefst kl. 16:00. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf, en sveitarfélögin á Vestfjörðum velja fulltrúa sína á fundinn sem fara með atkvæðisrétt. Í lok fundar verður boðið upp á veitingar.

föstudagurinn 15. maí 2009

Listamannaþing laugardaginn 16. maí

Auðun og ísbjörninn mæta
Auðun og ísbjörninn mæta

Laugardaginn 16. maí næstkomandi verður haldið Vestfirskt listamannaþing á Ísafirði og er listafólk af öllum Vestfjarðakjálkanum og aðrir áhugamenn um vestfirska list boðnir hjartanlega velkomnir á þingið. Á þinginu verður rætt um stöðu og framtíð listastarfsemi á Vestfjörðum og munu valinkunnir listamenn úr hópi heimamanna segja frá hugðarefnum sínum í þessu samhengi, auk þess sem rætt verður um listahátíðir á svæðinu.

LISTAMANNAÞING VESTFJARÐA
- Staða og framtíð listalífs á Vestfjörðum -
Laugardaginn 16. maí kl. 14 í Edinborgarhúsinu
Fundarstjóri: Jón Jónsson, menningarfulltrúi Vestfjarða

Það eru Menningarráð Vestfjarða og Kómedíuleikhúsið sem standa að listamannaþinginu, en Kómedíuleikhúsið hefur áður staðið tvö ár í röð fyrir slíku þingi fyrir listafólk í Ísafjarðarbæ. Vestfirska listamannaþingið hefst kl. 14:00 og verður haldið í Bryggjusalnum í Edinborgarhúsinu.

Drög að dagskrá:

Minni listanna - fulltrúi frá hverri listgrein fyrir sig flytur pistil um stöðu og framtíð sinnar greinar, einnig má búast við að farið verði um víðan völl í þessum erindum. Fyrirlesarar eru:

Kvikmyndalist, framtíð heimildarmyndargerðar - Kristinn Schram á Hólmavík
Myndlist - Marsibil G. Kristjánsdóttir á Ísafirði
Leiklist - Hannes Friðriksson frá Leikfélaginu Baldri Bíldudal (sökum anna Baldurmanna við söngævintýri í dag þá mun Guðrún Snæbjörg Sigþórsdóttir leikkona á Þingeyri flytja pistilinn)
Ritlist - Jón Páll Halldórsson á Ísafirði
Tónlist - Þröstur Jóhannesson á Ísafirði
Ljósmyndalist - Ágúst Atlason á Ísafirði

Listahátíðir á Vestfjörðum - fulltrúi frá hátíðum er haldnar eru árlega hér vestra, segir frá viðkomandi hátið, tilurð hennar, stutt um söguna og loks um framtíðina. Fyrirlesarar eru:

Act alone, leiklistarhátíð - Elfar Logi Hannesson, stofnandi og listr. stjórn ActAlone.
Aldrei fór ég suður, rokkhátíð - Hálfdán Bjarki Hálfdánsson, rokkstjóri
Skjaldborg, kvikmyndahátíð - Huldar Breiðfjörð, einn af stofnendum
Við Djúpið, tónlistarhátið - Fulltrúi frá hátíðinni

Menningartengd ferðaþjónusta - hvað er það fyrir nokkuð? - Jón Jónsson menningarfulltrúi og fyrrverandi formaður Ferðamálasamtaka Vestfjarða les mönnum pistilinn um þau fræði.

HLÉ - BOÐIÐ VERÐUR UPPÁ KAFFI OG KLEINUR

Sérstakur gestur þingsins Rúnar Guðbrandsson, leikstjóri, flytur erindi um tækifæri og möguleika vestfirskrar listar og listamanna, varpar fram gommu af hugmyndum, stórum sem smáum, framkvæmanlegum og ekki, einnig mun hann fara um víðan völl.

Félag vestfirskra listamanna (FVL) kynnt - Elfar Logi Hannesson kynnir hugmyndina að stofna félag vestfirskra listamanna - ef vel verður tekið í dæmið verður boðað til stofnfundar.

Orðið laust - opnar umræður og uppistand.

Eldri færslur

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« Mars 2010 »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón