miðvikudagurinn 13. maí 2009

Stefnumót safna, setra og sögusýning á Vestfjörðum

Starfsfólki og stjórnendum safna, setra og sögusýninga hefur verið boðið á stefnumót í Edinborgarhúsinu á Ísafirði að kvöldi föstudagsins 15. maí og að morgni 16. maí. Allir áhugamenn um safnastarf og sögutengda ferðaþjónustu eru einnig hjartanlega velkomnir. Stefnumót safna, setra og sýninga á Vestfjörðum og stendur dagskrá frá 20:00-22:00 á föstudagskvöld og 9:00-12:00 á laugardag. Hugmyndin er að þarna hittist fólk sem vinnur að uppbyggingu og þróun safna, setra og sýninga á Vestfjörðum, kynnist hvert öðru og beri saman bækur sínar, skiptist á reynslu og skoðunum, segi frá verkefnum sem verið er að vinna að og ræði um sameiginleg hagsmunamál og frekari möguleika við eflingu þessarar starfsemi.

Dagskrá - föstudagskvöldið 15. maí kl. 20:00
Gestir kynna starfsemi sinna sýninga, safna og setra. Einnig verður kynntur vestfirskur safnabæklingur sem Markaðsstofa Vestfjarða hyggst gefa út í vor.

Laugardagur 16. maí kl. 9:00-12.00.

Umræður, samræður og spjall. Góðir gestir sem flytja fyrirlestra um söfn, setur og sýningar, menningartengda ferðaþjónustu, samstarf, atvinnuuppbyggingu, markaðssetningu og fleira:

Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir, framkvæmdastjóri Selasetursins á Hvammstanga segir dæmisögu um vel heppnaða uppbyggingu seturs og ræðir um möguleika og tækifæri við slíka þróunarvinnu, m.a. við atvinnusköpun.

Guðbrandur Benediktsson sagn- og safnfræðingur, flytur erindi sem hann kallar: Ólíkir pólar? Minjavernd og menningarferðaþjónusta. Guðbrandur hefur einmitt rannsakað þetta efni töluvert, segir frá ólíkum skoðunum og togstreitu milli ólíkrar hugmyndafræði og veltir nú fyrir sér hvort ekki sé gáfulegra að byggja brýr en að dýpka skotgrafirnar.

Gísli Sverrir Árnason hjá fyrirtækinu R3 mun segja frá verkefni sem hann stýrir sem heitir Safnaklasi Suðurlands og byggir á samstarfi safna, setra og sýninga á Suðurlandi.

Jón Jónsson, menningarfulltrúi Vestfjarða dregur saman þræði og ræðir um möguleika svæðisins í þróun og uppbyggingu safna, setra og sýninga, og hvernig hún getur haft sem jákvæðust áhrif á byggð, atvinnulíf og mannlíf.

Allt áhugafólk um safnastarf, sýningahald og sögutengda ferðaþjónustu er hvatt til að mæta á stefnumótið sem er öllum opið. Það eru Valdimar J. Halldórsson forstöðumaður safnsins á Hrafneyri og Guðfinna Hreiðarsdóttir formaður stjórnar Byggðasafns Vestfjarða sem hafa undirbúið stefnumótið, ásamt Jóni Jónssyni menningarfulltrúa Vestfjarða.  

fimmtudagurinn 30. apríl 2009

Með Fyrirheit í tónleikaferð um Vestfirði

Bjarni Ómar
Bjarni Ómar

Síðastliðið haust kom út hljómplatan Fyrirheit, en aðalflytjandi og lagahöfundur á plötunni er Bjarni Ómar Haraldsson tónlistarmaður og deildarstjóri Tónskólans á Hólmavík. Þetta er önnur sólóplata Bjarna en árið 1998 sendi hann frá sér plötuna Annað líf. Frá því að platan kom út hafa þeir Bjarni Ómar og Stefán Steinar Jónsson píanóleikari haldið tónleika víða um land og nú er komið að því að þeir heimsæki norðanverða Vestfirði og verða tónleikar frá fimmtudegi fram á sunnudag á Ísafirði, Þingeyri, Flateyri, Suðureyri, Bolungarvík og Súðavík.

Þeir félagar hefja leikinn á Kaffi Edinborg á Ísafirði fimmtudagskvöldið 30. apríl klukkan 22:00. Föstudaginn 1. maí eru tónleikar í félagsheimilinu á Þingeyri klukkan 16:00 og á Vagninum á Flateyri klukkan 21:00. Laugardaginn 2. maí er komið að Suðureyri við Súgandafjörð og fara tónleikarnir þar fram í kirkjunni kl. 16:00. Klukkan 21:00 sama dag spila þeir svo í Einarshúsi í Bolungarvík. Síðustu tónleikarnir í þessari ferð fara fram á veitingastaðnum Ömmu Habbý í Súðavík sunnudaginn 3. maí og hefjast þeir kl. 16:00. Aðgangur er ókeypis.

Þeir félagar flytja lögin á plötunni í þægilegum útsetningum fyrir píanó, kassagítar og söng og rekja tilurð texta og laga ásamt því segja frá því sem kemur upp í hugann hverju sinni. Vakinn er athygli á að frítt er á alla tónleikana en að þeim loknum mun Bjarni selja og árita diskinn fyrir áhugasama. Tónleikarnir eru styrktir af Menningarráði Vestfjarða.

Um hljómplötuna Fyrirheit

Hitann og  þungan af öllum hljóðfæraleik á plötunni ber allt muligt maðurinn Borgar Þórarinsson, en aðrir sem koma við sögu auk Borgars og Bjarna eru trommuleikarinn góðkunni Haukur Pálmason og slagverksmaðurinn Svavar Viðar Hafþórsson. Um bakraddir og dúetta sjá Strandamennirnir Aðalheiður Lilja Bjarnadóttir sem er dóttir Bjarna, Arnar S. Jónsson, María Mjöll Guðmundsdóttir, Salbjörg Engilbertsdóttir, Sigurrós G. Þórðardóttir og Stefán S. Jónsson.

Diskurinn inniheldur 12 lög og eru flestar lagasmíðarnar  melódískt popp í rólegri kantinum. Ástin og samkipti kynjanna skipa stórt hlutverk í textagerð.  Bjarni Ómar á sex texta á disknum en auk hans eru tveir aðrir textahöfundar frá Hólmavík, þau Hrafnhildur Guðbjörnsdóttir kennari og Arnar S. Jónsson framkvæmdastjóri Sauðfjársseturs á ströndum. Í textagerðinni koma einnig við sögu Jónas Friðrik Guðnason frá Raufarhöfn, Oddur Bjarni Þorkelsson úr Ljótu hálfvitunum, Þorgerður Þóra Hlynsdóttir á Skagaströnd og Helgi Jónsson sem meðal annars var hljómborðsleikari í hljómsveitinni Írafár.

Upptökur fóru fram í júní - september 2008. Tekið var upp í stúdió Hljóðhimnum sem staðsett er í Hornslet í Danmörku og Hljóðlist á Akureyri. Þá var sumarbústaðnum Brekkuseli á Ströndum breytt í stúdíó í eina viku  í júlí þar sem allar bakraddir voru teknar upp. Eftirvinnsla og mastering fór fram stúdíó Hljóðhimnum. Upptökustjórn var í höndum Borgars Þórarinssonar en hann var einnig upptökumaður og sá um masteringu.

fimmtudagurinn 30. apríl 2009

Auðun og ísbjörninn í Haukadal um helgina

Auðun og ísbjörninn
Auðun og ísbjörninn

Kómedíuleikhúsið sýnir leikritið vinsæla Auðun og ísbjörninn á Gíslastöðum, samkomuhúsinu, í Haukadal. Sýnt verður á sunnudag, 3. maí, og hefst sýningin kl.15. Miðasölusími er 891 7025 en einnig er hægt að panta miða á heimasíðu leikhússins www.komedia.is Sýningin hefur notið mikilla vinsælda og hlotið afbragðs góðar viðtökur áhorfenda. Leikritið Auðun og ísbjörninn er byggt á Íslendingaþættinum Auðunar þáttur vestfirzka sem er án efa besti og vinsælasti allra Íslendingaþátta. Hér segir frá bóndastrák frá Vestfjörðum sem leggst í víking og á vegi hans verður taminn ísbjörn. Auðun ákveður að gefa Sveini Danakonungi ísbjörninn og hefst þá ævintýralegt ferðalag piltsins og bjarnarins.

Höfundur og leikstjóri er Soffía Vagnsdóttir og leikari er Elfar Logi Hannesson. Tónlistin í leiknum er eftir Hrólf Vagnsson en Bára Grímsdóttir og Steindór Andersen flytja söngvana. Höfundar leikmyndar eru Kristján Gunnarssona og Marsbil G. Kristjánsdóttir en hún hannar einnig ísbjörninn, leikmuni og leikgerfi. Búninga gerir Alda Veiga Sigurðardóttir listakona á Þingeyri.


Kómedíuleikhúsið er fyrsta og eina atvinnuleikhúsið á Vestfjörðum. Leikhúsið hefur starfað fyrir vestan með miklum blóma síðan um síðustu aldamót og sett á svið fjölmörg leikverk. Síðan 2001 hefur Kómedía helgað sig einleiknum og hefur orðið nokkuð ágengt á því sviði og verið í fararbroddi þessarar sérstöku listgreinar hér á landi. Þekktasti leikur Kómedíu er án efa Gísli Súrsson sem hefur verið sýndur um 200 sinnum bæði hér heima og erlendis og unnið tvívegis til verðlauna á erlendum leiklistarhátíðum. Af öðrum einleikjum Kómedíu má nefna Muggur, Steinn Steinarr, Pétur og Einar, Dimmalimm og Jólasveinar Grýlusynir.

Kómedíuleikhúsið sér einnig um listræna stjórn leiklistarhátíðarinnar Act alone á Ísafirði sem er helguð einleikjum. Hátíðin var fyrst haldin árið 2004 og hefur vaxið og dafnað með ári hverju. Act alone fékk Menningarverðlaun DV árið 2008. Act alone verður haldin sjötta árið í röð dagna 14.-16. ágúst nú í ár. Það er óhætt að segja að Kómedíuleikhúsið hafi poppað uppá menningarlífið á Vestfjörðum á síðustu árum enda hefur leikhúsið jafnan sinnt vestfirskum sagnaarfi sérstaklega.

þriðjudagurinn 28. apríl 2009

Menningarlandið 2009 - ráðstefna í Stykkishólmi

Menntamálaráðuneyti, Iðnaðarráðuneyti og Samband íslenskra sveitarfélaga boða til ráðstefnu á Hótel Stykkishólmi dagana 11. og 12. maí í samstarfi við menningarráðin á landsbyggðinni. Fjallað verður um reynsluna af menningarsamningum ríkis og landshlutasamtaka sveitarfélaga og spurt hver árangur hafi orðið og hvert beri að stefna. Hvernig getum við nýtt okkur menningu og menningartengda ferðaþjónustu til nýrrar sóknar í nýsköpun og nýtingu menningararfs? Menningarráðin á landsbyggðinni kynna starfsemi sína og bjóða upp á fjölbreytt sýnishorn skapandi menningar. Fróðleg erindi og spennandi viðburðir.

 

DAGSKRÁ


Mánudag 11. maí


Kl. 12:00 Trommusveitin í Stykkishólmi býður gesti velkomna

     Ávarp ráðherra

     Landshlutapóstur frá Menningarráði Vesturlands og Vestfjarða

Kl. 12:40 Dögg Mósesdóttir: Framtíðarfjárfestingin menning

Kl. 13:00 Leikatriði frá Ungmennafélaginu Íslendingi í boði Menningarráðs Vesturlands

Stutt hlé


Kl. 13:30 Elísabet Indra Ragnarsdóttir: „Við verðum að læra að sjá meira, heyra meira, skynja meira ..."

Kl. 13:50 Hjálmar H. Ragnars: Skapandi kraftur

Kl. 14:10 Jón Hrólfur Sigurjónsson: „Hér er hægt að fá brjálaðar hugmyndir og láta þær gerast!"

Kl. 14:30 Spurningar og svör um menningaruppeldi og listfræðslu 

Stutt hlé


Kl. 15:00 Tónlistarperlur: Alexandra Chernyshova sópran, Þórhallur Barðason barinton og Tom R. Higgerson píanóleikari flytja. Tónlistaratriði í boði Menningarráðs Norðurlands vestra

Kl. 15:15 Landshlutapóstur frá Menningarráði Norðurlands vestra

Kl. 15:30 Þór Sigfússon: Um þýðingu lista og menningar í íslensku athafnalífi 

Stutt hlé

Kl. 16:10 Menningarlandið 2009: Höfum við gengið til góðs: Guðrún Helgadóttir og Signý Ormarsdóttir flytja hugleiðingu um reynslu og árangur af menningarsamningum ríkis og sveitarstjórna. Að erindum þeirra loknum taka þær þátt í pallborði ásamt Svanfríði Jónasdóttur bæjarstjóra á Dalvík og fulltrúum frá iðnaðar- og menntamálaráðuneytum.  

Kl. 17:15 Sameiginleg upplifunarferð með ævintýrasiglingu. Sturla Böðvarsson segir frá sögu og skipulagi gamla miðbæjarins í Stykkishólmi og gengið verður fylktu liði gegnum gamla bæinn, niður á höfn og um borð í bát sem siglir með gesti um Breiðafjörð. Boðið verður upp á ferskt sjávarfang um borð.  

Kl. 19:45 Fordrykkur í boði Stykkishólmskaupsbæjar í Vatnasafninu.

Kl. 21:00 Kvöldverður með næringu fyrir líkama og sál. Þjóðlagasveitin frá Akranesi, Stefán Benedikt Vilhelmsson leikari, Þórunn Gréta Sigurðardóttir píanóleikari og Kómedíuleikhúsið frá Ísafirði verða meðal skemmtiatriða.

 

Þriðjudag 12. maí


Kl. 09:30 Svanhildur Konráðsdóttir:  Menning - mikilvægur drifkraftur í ferðaþjónustu

Kl. 09:50 Landshlutapóstur frá Menningarráði Eyþings

Kl. 10:05 Stuttmyndafestivalið Stulli - verðlaunamynd og bjartasta vonin 2008 í boði Menningarráðs Eyþings

Kl. 10:15 Dansgjörningur í boði Menningarráðs Eyþings: Anna Richardsdóttir

Kl. 10:30 Landshlutapóstur frá Menningarráði Suðurlands  

Kl. 10:45 Þjóðlagasveitin Korka í boði Menningarráðs Suðurlands 

Stutt hlé

Kl. 11:20 Sigríður Sigurjónsdóttir: Stefnumót Bænda og hönnuða

Kl. 11:40 Sólveig Ólafsdóttir: Meyjarhumar og hákarl

Kl. 12:00 Matarhlé

Kl. 13:00 Viðar Hreinsson: Menningararfur og sjálfsmynd Íslendinga

Kl. 13:20 Hjálmar Sveinsson: Skipulag er menning

Kl. 13:40 Umræður

Stutt hlé


Kl. 14:20 Landshlutapóstur frá Menningarráði Austurlands

Kl. 14:35 Brynhildur Guðjónsdóttir: Í fáum orðum

Kl. 15:00 Jón Jónsson: Rótað í framtíðinni

Kl. 15:20 Ávarp ráðherra

Kl. 15:30 Lúðrasveit Stykkishólms og Akraness kveður gesti

þriðjudagurinn 7. apríl 2009

Auglýst eftir styrkumsóknum

Menningarráð Vestfjarða hefur auglýst eftir styrkumsóknum vegna fyrri úthlutunar á árinu 2009 til menningarverkefna á Vestfjörðum. Um er að ræða styrki til afmarkaðra menningarverkefna og eru umsóknir bornar saman á samkeppnisgrundvelli, þannig að fara þurfa saman áhugaverð verkefni og góðar umsóknir til að líkur séu á að styrkur fáist.

Menningarráð Vestfjarða hefur skilgreint ákveðna áhersluþætti við hverja úthlutun til þessa og við fyrri úthlutun 2009 verður litið sérstaklega til menningarverkefna sem fela í sér eftirtaldar áherslur:
   a. Nýsköpun á sviði lista og menningarstarfs.
   b. Verkefni sem miða að fjölgun starfa.
   c. Samstarf milli menningarstofnanna, byggðarlaga eða listgreina og uppsetning viðburða á fleiri en einum stað. 
   d. Verkefni sem stuðla að samvinnu atvinnumanna í listum og leikmanna.
   e. Verkefni sem miða að því að listnemar eða ungir listamenn frá Vestfjörðum komi í auknum mæli að listsköpun og menningarstarfi í fjórðungnum.    
   f.  Viðamikil samstarfsverkefni sem byggja á samstarfi þriggja eða fleiri aðila og leiða til samstarfs milli ólíkra svæða á Vestfjörðum.


Umsóknarfrestur er til föstudagsins 17. apríl og er rafrænt umsóknarblað, leiðbeiningar og úthlutunarreglur að finna hér á vef Menningarráðsins. Allar nánari upplýsingar gefur menningarfulltrúi Vestfjarða, Jón Jónsson, í síma 891-7372 og netfanginu menning@vestfirdir.is.

Eldri færslur

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« Mars 2010 »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón