mánudagurinn 2. mars 2009

Sýningarferðalagið hefur gengið vel

Sýningarferðalagið „Bíldudalsstein, Vestfirðir að vetri" sem Gallerie Dynjandi á Bíldudal stendur fyrir gengur vel að sögn sýningarhaldara. Fyrir helgi lauk sýningu í Ráðhúsinu Reykjavík og á Akureyri um helgina. Því næst verður sýningin sett upp í Háskólasetri Vestfjarða á Ísafirði og síðan í Þróunarsetrinu á Hólmavík. „Aðsókn að sýningunni hefur verið góð og hafa sýningagestir látið vel að því sem fyrir augu ber. Segja má að sýningin sé fjölbreytt og spanni vítt svið, ljósmynd, höggmynd, myndir unnar með pastellitum, glerblástur og brons. Sérstaka athygli hafa þrívíddarljósmyndir Hafdísar Húnfjörð vakið", segir á bildudalur.is. Öll verkin á sýningunni eru til sölu og hafa þegar nokkur verkanna selst, en þau verða afhent að sýningaferðalagi loknu.

miðvikudagurinn 11. febrúar 2009

Ferðalag með Bíldudalsstein

Eitt listaverka Hönnu Woll
Eitt listaverka Hönnu Woll

 

Gallere Dynjandi á Bíldudal heldur í sýningaferðalag með "Bíldudalsstein, Vestfirði að vetri" eftir listamennina Hönnu Woll frá Þýskalandi og Hafdísi Húnfjörð frá Tálknafirði.

 

Sýningin verður sett upp sem hér segir:

 

  1. Safnaðarheimilinu á  Patreksfirði 17.-  18. og 19. febrúar nk.

Formleg opnun 17. feb. nk. kl. 18.00, opnunartími frá kl. 18.00 til 21.00 alla daga.


  1. Ráðhúsinu Reykjavík
    24.- 25. og 26. febrúar nk.

Formleg opnun 24. febrúar nk. kl 17.00 opið til kl. 19.00.

 Dagana 25.febrúar og 26.febrúar  nk. opið frá kl. 08.00 til kl. 19.00.


  1. Ketilhúsinu Akureyri
    28. febrúar nk. og 1. og 2. mars nk.

Formleg opnun 28. febrúar  nk. kl. 13.00 opið til kl. 18.00,

1. mars nk. opið frá kl. 13.00 til kl. 18.00.  2. mars nk. opið frá kl. 13.00 til kl. 21.00.


  1. Háskólasetrið á Ísafirði
    4. og 5. mars nk.

Formleg opnun 4 mars nk. kl. 14.00 opið til kl. 21.00.  5. mars nk. opið frá kl. 09.00 til 21.00


  1. Þróunarsetrið á Hólmavík
    6. og 7. mars nk.

Formleg opnun 6. mars nk. kl. 18.00 opið til kl 21.00.  7. mars opið frá kl. 13.00 til kl. 18.00

 

"Bíldudalsstein, Vestfirðir að vetri" er sýning sem saman stendur, annars vegar af höggmyndum og málverkum eftir Hönnu Woll frá Þýskalandi sem dvaldi á Bíldudal sumarið 2008 og vann að listsköpun, og  hinsvegar ljósmyndum, þrívíddarmyndum og ljósmyndum á tjaldi eftir Hafdísi Húnfjörð frá Tálknafirði en hún er áhugaljósmyndari.

 

Á sýningunum verður sagt frá verkum þeirra og þó sérstaklega sagt frá myndefninu á tjaldsýningunni og mun Jón Þórðarson, sýningahaldari, ræða við sýningargesti um Vestfirði að vetri. Viðræður við sýningargesti fara fram síðustu tvo tíma hvers dags, opnunardagana. Við formlega opnun sýningarinnar ræðir Jón við sýningargesti allan tímann.

 

Sýningaferðalagið er styrkt að Menningarráði Vestfjarða. Verið velkomin á sýningu Gallere Dynjanda, enginn aðgangseyrir.

fimmtudagurinn 5. febrúar 2009

Nýsköpunarkeppni - eitthvað fyrir menninguna?

Vaxtarsamningur Vestfjarða (Vaxvest) og Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða  (Atvest) efna til Nýsköpunarkeppni. Keppnin miðar að því að styðja við frambærilegar nýsköpunarhugmyndir og styðja frumkvöðla til framkvæmda með fjárframlagi og faglegri ráðgjöf. Þessar hugmyndir eiga svo að styðja við uppbyggingu atvinnulífs á Vestfjörðum.
 
Nýsköpun er mikilvægur þáttur í vexti og uppbyggingu hagkerfis og í því efnahagsástandi sem nú ríkir er nauðsynlegt að nýsköpunarhugmyndir fái allan þann stuðning sem mögulegt er að bjóða. Reynslusögur frumkvöðla eru oftast á þann veg að það sé erfitt að fá fjármögnun til að hefja rekstur og koma viðskiptahugmynd á það stig að það þyki aðlaðandi fyrir fjárfesta. Nýsköpunarkeppni Vestfjarða mun taka á þessu með því að veita vegleg verðlaun.
 
Það er von Vaxvest og Atvest að sem flestir sjái sér fært að taka þátt í keppninni og verða haldin örnámskeið í gerð viðskiptaáætlana í febrúar og mars til þess að aðstoða frumkvöðla við faglegan undirbúning. Nánari upplýsingar um örnámskeiðin verða sett á heimasíðu Atvest þegar staðsetningar og tímasetningar liggja endanlega fyrir.
 
Möguleiki er á því að verðlaunahafar fái aðstöðu í frumkvöðlasetrinu Eyrin sem verið er að gangsetja í húsnæði Þróunarseturs á Ísafirði. Það verður þó metið í samhengi við eðli viðskiptahugmynda.
 
Þeir sem hafa hug á að taka þátt, geta kynnt sér málið á heimasíðu Atvest og sett sig í samband við þá verkefnisstjóra sem þar eru tilgreindir.

þriðjudagurinn 3. febrúar 2009

Við heimtum aukavinnu á Ísafirði

Í Edinborgarhúsinu á Ísafirði verður boðið uppá alþýðlega leik- og söngskemmtunina Við heimtum aukavinnu í febrúar. Hér er á ferðinni stórskemmtileg sýning sem er byggð á verkum bræðranna Jónasar og Jóns Múla Árnasona. Flutt verður úrval laga þeirra bræðra s.s. Klara Klara, Riggarobb, Einu sinni á ágústkvöldi, Og þá stundi Mundi, Augun þín blá, Langi Mangi, Við heimtum aukavinnu, auk fjölda slagara úr smiðju Árnasona. Hér er sannkölluð söngperla á sviði og ekki sakar að allir geta sungið með. Það er Litli leikklúbburinn í samvinnu við Kómedíuleikhúsið sem stendur að Við heimtum aukavinnu í Edinborgarhúsinu. Menningarráð Vestfjarða styrkir þessa sýningu. Miðaverðið er mjög alþýðlegt eða aðeins 1.9000.- og miðasölusími er 618 8269.

Sýningar verða sem hér segir á Við heimtum aukavinnu í Edinborgarhúsinu:


Fös. 6. febrúar kl. 21 Frumsýning.

Lau. 7. febrúar kl. 21.

Fös. 13. febrúar kl. 21.

Lau. 14. febrúar kl. 21.

Fös. 10. apríl kl. 21 Skíðavika á Ísafirði.

þriðjudagurinn 3. febrúar 2009

Stórgóðir tónleikar hjá Svavari Knút

Svavar Knútur
Svavar Knútur

Trúbadorinn Svavar Knútur sem einnig syngur með hljómsveitinni Hraun, hélt stórgóða tónleika á Galdraloftinu á Galdrasafninu á Hólmavík á dögunum. Flutti hann lög af útkomnum plötum og einnig af væntanlegri plötu þar sem hamingjan verður í fyrirrúmi. Svavar Knútur kom svo við í skólanum á Hólmavík og skemmti grunnskólanemendum, áður en hann hélt áfram í Skagafjörðinn þar sem næstu tónleikar voru bókaðir í Auðunnarstofu á Hólum.

Fréttin er afrituð af www.strandir.is.

Eldri færslur

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« Mars 2010 »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón