Menningarráð Vestfjarða

Stjórn Menningarráðs Vestfjarða er skipuð sjö fulltrúum sveitarfélaga á Vestfjörðum. Fulltrúar skiptast þannig að einn sameiginlegur fulltrúi er frá Strandasýslu og Reykhólahreppi, einn fulltrúi er frá Vestur-Barðastrandarsýslu, einn sameiginlegur fulltrúi frá Bolungarvík og Súðavíkarhreppi og tveir fulltrúar frá Ísafjarðarbæ. Auk þess tilnefnir Fjórðungssamband Vestfirðinga tvo fulltrúa.  

Starfsemi Menningarráðsins byggir annars vegar á samningi milli sveitarfélaga á Vestfjörðum um menningarmál sem undirritaður var 10. júní 2007 og hins vegar á samningi milli menntamálaráðherra, samgönguráðherra og Fjórðungssambands Vestfirðinga um samstarf ríkis og sveitarfélaga á Vestfjörðum um menningarmál sem undirritaður var 1. maí 2007. Auk þessa samþykkti Menningarráðið í júlí 2007 starfsreglur í formi stofnsamþykktar sem segja til um vinnubrögð og verklag, stjórnarskipun, aðalfund og starfshætti almennt.

Samkvæmt samþykktum og samningum skal Menningarráð Vestfjarða vera samstarfsvettvangur sveitarfélaga á Vestfjörðum um menningarmál og hafa meðal annars það hlutverk að samræma aðgerðir á sviði menningarmála á starfssvæðinu, standa fyrir öflugu þróunarstarfi, úthluta fjármagni til menningarverkefna á Vestfjörðum samkvæmt samningi ríkis og sveitarfélaga og hafa eftirlit með framkvæmd þess samnings.

Samningur milli sveitarfélaga á Vestfjörðum

Samningur milli menntamálaráðherra, samgönguráðherra og Fjórðungssambands Vestfirðinga

Stofnsamþykkt og starfsreglur Menningarráðs Vestfjarða
 

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« Mars 2010 »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón