Erindi menningarfulltrúa

Jón Jónsson, menningarfulltrúi Vestfjarða, hefur frá því hann tók við embættinu haldið nokkur erindi eða fyrirlestra víðs vegar um landið um menningar-, atvinnu- og byggðamál eða jafnvel þjóðfræði ef því er að skipta. Sjálfsagt er að skipuleggja slíka fyrirlestra í tengslum við uppákomur, málþing eða ráðstefnur víðs vegar um Vestfirði, ef áhugi er á því. Hafið samband ef þið haldið að framlag menningarfulltrúans gæti fallið að ykkar framtaki.

Yfirlit yfir námskeið, fyrirlestra eða erindi:

5. september 2009: Menning í sókn. Erindi og þátttaka í pallborði á málþinginu Vestfirðir - landshluti í sókn sem haldið var í Edinborgarhúsinu á Ísafirði í tengslum við Fjórðungsþing Vestfirðinga. Fjallað var um fyrirhugaða Sóknaráætlun Vestfjarða.

ágúst 2009: Grasrótarstarf í atvinnu- og byggðamálum á Ströndum. Erindi á aðalfundi samtakanna Landsbyggðin lifi.

ágúst 2009: Förumenn og leiklist. Einleikið erindi um flakkara og uppákomur þeirra á 19. öldinni á hátíðinni Act Alone 2009, haldið í Haukadal í Dýrafirði.

júní 2009: Á mörkum mennskunnar. Flakkarar og bændakonur á Ströndum. Fyrirlestur á ráðstefnunni Strandhögg 2009, sem haldin var af Félagi þjóðfræðinga, Sagnfræðingafélagi Íslands og Þjóðfræðistofu.

23. maí 2009: Menning á sjálfbærum áningarstað. Málþing Markaðsráðs Hríseyjar, styrkt af Menningarráði Eyþings.

20. maí 2009: Námskeið í fjarfundabúnaði um Vestfirði alla. Máttur menningar. Menningartengd ferðaþjónusta á Vestfjörðum. Átthagafræði. Svæðisþekking á Ströndum.

maí 2009 Vestfirskt listamannaþing.

maí 2009: Safnastefnumót á Ísafirði

12. maí 2009: Rótað í framtíðinni. Fyrirlestur á ráðstefnunni Menningarlandið, sem haldin var í Stykkishólmi 11.-12. maí á vegum Menntamálaráðuneytis, Iðnaðarráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Menningarráðanna á landsbyggðinni.

11. maí 2009: Landshlutapóstur frá Vestfjörðum. Kynning á stöðu menningarmála á Vestfjörðum á ráðstefnunni Menningarlandið, sem haldin var í Stykkishólmi 11.-12. maí á vegum Menntamálaráðuneytis, Iðnaðarráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Menningarráðanna á landsbyggðinni.

apríl 2009: Erindi á málþingi um börn og ferðalög á Drangsnesi.

19. mars 2009: Atvinnuskapandi menningarstarfs og Menningarráð Vestfjarða. Súpufundur á vegum Þróunarseturs á Hólmavík á Café Riis.

12. mars 2009: Máttur menningar. Kynning haldin á Máttur menningar. Málþingi um menningartengda ferðaþjónustu í Árnesi á Suðurlandi sem haldin var á vegum Menningarráðs Suðurlands.  

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« Mars 2010 »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón