Menningarráð - 16. jan. 2008
Þann 16. janúar 2008 var fyrsti fundur ársins hjá Menningarráði Vestfjarða. Fundurinn var haldinn í Þróunarsetrinu á Ísafirði og hófst kl. 16:05. Allir fulltrúar í Menningarráði tóku þátt í fundinum. Á staðnum voru Gunnar Hallsson formaður, Ólína Þorvarðardóttir varaformaður, Dagbjört Hjaltadóttir og Gerður Eðvarsdóttir. Í síma voru Sveinn Valgeirsson, Leifur Jónsson og Arnar S. Jónsson. Einnig sat Jón Jónsson menningarfulltrúi Vestfjarða fundinn og ritaði fundargerð.
1. Skýrsla menningarfulltrúa
Jón Jónsson sagði frá starfsemi Menningarráðsins, því sem unnið hefði verið að og því sem framundan væri. Bað hann meðlimi Menningarráðsins að gerast eins konar fréttaritarar fyrir vef ráðsins á vefslóðinni www.vestfirskmenning.is, svo hægt yrði að nota þann vef til að halda utan um þá menningaratburði, hátíðir og uppákomur sem ættu sér stað á starfsvæðinu. Vefsíðan var opnuð í byrjun október og framundan er uppfærsla á vefnum þar sem fleiri efnisþáttum verður bætt við.
Jón greindi frá helstu verkefnum í daglegu starfi menningarfulltrúa, þátttöku í fundum og að nokkur tími fari í að aðstoða aðstandendur vestfirskra menningarverkefna við gerð styrkumsókna og benda þeim á leiðir við fjármögnun.
2. Viðbrögð við styrkúthlutun Menningarráðs 2007
Við styrkúthlutun 2007 var úthlutað 52 styrkjum til verkefna, en 52 umsóknir fengu ekki brautargengi að þessu sinni. Styrkir voru á bilinu 50 þúsund til 1,5 milljón. Rætt var vítt og breitt um úthlutunina og fram kom að úthlutunin hafði yfirleitt fengið jákvæð viðbrögð. Rætt var sérstaklega um skilgreiningar, m.a. á bæjarhátíðum, og eins var tekin til umræðu afgreiðsla einstakra umsókna sem athugasemdir höfðu borist við, en Menningarráðið telur að umræddar umsóknir hafi fengið eðlilega afgreiðslu.
Menningarráðið hvetur þá sem ekki fengu styrki við síðustu úthlutun en eru með góð verkefni til að þróa þau áfram og sækja um að nýju. Jafnframt hvetur Menningarráðið umsækjendur til að vanda umsóknir og frágang þeirra. Þá áréttar Menningarráðið að sjóður sá sem ráðið úthlutar úr sé samkeppnissjóður, þar sem verkefnastyrkjum er úthlutað eftir gæðum verkefna og umsókna. Ekki er litið sérstaklega til svæðisskiptingar þegar umsóknir eru afgreiddar.
3. Úthlutun Menningarráðs á styrkjum 2008
Rætt var ítarlega um úthlutunarreglur fyrir árið 2008. Fram kom vilji til að úthlutunarreglur yrði með svipuðu sniði og áður, en þó voru gerðar tillögur um nokkrar breytingar og að skerpt yrði á skilgreiningum í nokkrum tilvikum. Gunnari Hallsyni formanni var falið að setja fram hugmynd um úthlutunarreglur í takt við umræður á fundinum og þær yrðu síðan til umræðu í tölvupósti.
Talsverðar umræður urðu um kosti þess og galla að úthluta styrkjum einu sinni eða tvisvar á ári. Ákveðið var að á árinu 2008 yrði um tvær úthlutanir að ræða, önnur snemma árs og hin um haustið. Ætla má að um það bil 14 milljónir verði til ráðstöfunar í hvort skipti. Samþykkt var að stefna að því að ganga frá úthlutunarreglum sem fyrst og auglýsa í febrúar. Umsækjendum yrði gefinn mánaðarfrestur til að skila inn umsóknum og stefnt að úthlutun í apríl.
4. Önnur mál
Ekki voru önnur mál á dagskrá fundarins.
Fleira var ekki tekið fyrir og fundi var slitið kl. 17:30.
