Menningarráð - 16. maí 2008

Fundur var haldinn í Menningarráði Vestfjarða í Þróunarsetrinu á Ísafirði þann 16.  maí 2008. Á fundinn voru mættir Gunnar Hallsson formaður, Dagbjört Hjaltadóttir, Gerður Eðvarsdóttir, Sveinn Valgeirsson, Arnar S. Jónsson og Ólína Þorvarðardóttir. Leifur Ragnar Jónsson átti ekki heimangengt á fundinn. Einnig sat fundinn Jón Jónsson menningarfulltrúi sem skrifaði fundargerð.
 
Fundurinn hófst kl. 14:00 og stýrði Gunnar Hallsson formaður fundinum.
 
Fyrir var tekið:
 
1. Ákvörðun um boðun aðalfundar
Ákveðið var að halda aðalfund Menningarráðs Vestfjarða í Þróunarsetrinu á Patreksfirði þann 18. júní 2008 kl. 14:00. Menningarfulltrúa falið að senda út fundarboð til sveitarfélaga ásamt árskýrslu 2007. Rætt um skipulag fundarins.
 
2. Ársreikningur Menningarráðs 2007 kynntur
Farið yfir drög að ársreikningi Menningarráðsins fyrir 2007 frá Löggiltum endurskoðendum Vestfjörðum. Gerðar tillögur um breytingar á sundurliðunum og menningarfulltrúa falið að ganga frá reikningnum með endurskoðendum og senda hann síðan út til menningarráðsliða og sveitarfélaga fyrir aðalfundinn til kynningar.
 
3. Bréf frá Atvinnuþróunarfélagi Vestfjarða
Tekið var fyrir erindi frá Atvinnuþróunarfélagi Vestfjarða um menningarhátíð syðra til kynningar á Vestfjörðum og til að efla ímynd svæðisins. Menningarráð tók jákvætt í hugmyndina og vill fylgjast með framvindu mála.
 
4. Ráðstefna um menningarstefnur sveitarfélaga haldin á Akureyri 22. maí nk.
Rætt var um þátttöku fulltrúa í Menningarráði í ráðstefnum á landsvísu og hvatt til hennar. Rætt var sérstaklega um ráðstefnuna á Akureyri og fleiri ráðstefnur í þessu sambandi. Menningarfulltrúi hefur sótt ýmsar ráðstefnur og kom fram að gott væri ef þeir sem sæktu fundi og ráðstefnur miðluðu upplýsingum um þær til Menningarráðsins.  
 
5. Önnur mál
a) Rætt var um styrkúthlutun vorið 2008 og þótti hún hafa gengið vel.
b) Rætt var um styrki frá fyrirtækjum og samþykkt að leita eftir styrkjum til að styðja sérstaklega við ákveðna málaflokka við úthlutun styrkja frá Menningarráðinu.
c) Rætt um verðlaun og viðurkenningar sem Menningarráð gæti staðið fyrir.
d) Rætt var um þóknun til fulltrúa í Menningarráði og ákveðið að taka hana til skoðunar fyrir næsta stjórnarfund. Leggja á fram tillögu um þóknun á aðalfundi.
e) Samþykkt var að halda næsta stjórnarfund fyrir aðalfundinn á Patreksfirði 18. júní.
 
Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið laust eftir kl. 15:30.

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« September 2010 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30    
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón