Menningarráð - 24. júlí 2007

Þriðji fundur Menningarráðs Vestfjarða haldinn þann 24. júlí 2007 kl. 16.00 í fundarsal Þróunarseturs á Ísafirði.
 
Mættir voru: Gunnar Hallsson (Bolungarvík/Súðavík), Ólína Þorvarðardóttir (Ísafjarðarbær), Arnar S. Jónsson (Strandabyggð/Reykhólar). Gerður Eðvarsdóttir (Ísafjarðarbær) forfallaðist, í hennar stað mætti Inga S. Ólafsdóttir (Ísafjarðarbær). Rúna Esradóttir (Fjórðungssamband) forfallaðist, í hennar stað mætti Helga Dóra Kristjánsdóttir (Fjórðungssamband). Leifur Ragnar Jónsson (Vesturbyggð/Tálknafjörður) forfallaðist og mætti enginn í hans stað.  Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (starfsmaður) sat einnig fundinn og ritaði fundargerð.
  
1. Umsóknir um starf Menningarfulltrúa Vestfjarða.
Alls bárust ellefu umsóknir um starf Menningarfulltrúa Vestfjarða innan tilskilins tíma. Unnið verður úr umsóknunum á næstu dögum og er áformað að ganga frá ráðningu sem fyrst. Samþykkt var að ráða Capacent - Ráðningar til að velja úr hópi umsækjenda þrjá til fjóra hæfustu umsækjendurna sem ráðið mun síðan taka afstöðu til. Umsækjendum verður sent tölvuskeyti til upplýsinga um ráðningarferlið. 

2. Úthlutunarreglur
Farið yfir drög að úthlutunarreglum. 

3. Önnur mál
- Rúna Esradóttir hefur óskað eftir lausn starfa frá ráðinu. Stjórn Fjórðungssambandsins mun skipa nýjan fulltrúa í hennar stað fljótlega.

Fundi slitið kl. 17.50.
 

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« September 2010 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30    
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón