Menningarráð - 6. nóv. 2008

Stjórnarfundur var haldinn í Menningarráði Vestfjarða í Þróunarsetrinu í Bolungarvík þann 6. nóvember 2008. Á fundinn voru mættir Gunnar Hallsson formaður, Dagbjört Hjaltadóttir, Gerður Eðvarsdóttir, Sveinn Valgeirsson, Ólína Þorvarðardóttir og Arnar S. Jónsson. Leifur Ragnar Jónsson tók þátt í fundinum í gegnum síma. Einnig sat fundinn Jón Jónsson menningarfulltrúi sem ritaði fundargerð. Fundurinn var settur 13:30, en upphaf hans tafðist nokkuð vegna vandræða með tengingu.

1. Afgreiðsla styrkumsókna við síðari úthlutun 2008
Rætt um umsóknir sem borist höfðu til Menningarráðsins vegna síðari úthlutunar á styrkjum á árinu 2008. Til ráðstöfunar voru 17,4 milljónir samkvæmt fjárhagsáætlun sem samþykkt var á aðalfundi Menningarráðs Vestfjarða sumarið 2008. Umsóknir voru teknar til afgreiðslu og rætt um hverja og eina. Fyrst var tekin ákvörðun um hvort einstakar umsóknir hlytu styrk með hliðsjón af gæðum umsókna og úthlutunarreglum og áherslum Menningarráðsins við þessa úthlutun. Í síðari umferð voru styrkupphæðir ræddar og ákveðnar með hliðsjón af því fjármagni sem til ráðstöfunar var. Meðlimir í Menningarráði viku af fundi þegar umsóknir sem tengdust þeim með einhverjum hætti komu til afgreiðslu.

Ákveðið var að styrkja 52 verkefni að þessu sinni og eru einstakir styrkir á bilinu 50 þúsund til 1 milljón.

2. Úthlutun styrkja
Ákveðið var að úthlutun styrkjanna færi fram á Patreksfirði að þessu sinni og menningarfulltrúa falið að finna hentuga dagsetningu og kynna niðurstöðuna.

Fundi var slitið eftir langa og stranga vinnutörn um kl. 19:00.

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« September 2010 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30    
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón