Styrkveitingar Menningarráðs til menningarverkefna

Menningarráð Vestfjarða veitir verkefnastyrki til menningarstarfs á svæðinu. Styrkjum var fyrst úthlutað árið 2007 og árið 2008 og 2009 var styrkjum úthlutað tvisvar sinnum. Nú hefur verið ákveðið að hafa sama háttinn á árið 2010 og verður styrkjum úthlutað tvisvar sinnum. Umsóknarfrestur fyrir fyrri úthlutun er runninn út, en aftur verður auglýst eftir umsóknum haustið 2010. Úthlutunarreglur hverju sinni eru aðgengilegar undir tenglinum Styrkir hér til hægri, eins og rafræna eyðublaðið sjálft og leiðbeiningar við gerð umsókna. Hér má einnig nálgast umsóknareyðublað á Word-formi, sem hægt er að geyma á eigin tölvu og senda síðan sem viðhengi með tölvupósti á menning@vestfirdir.is.

Þeim sem hyggjast sækja um er bent á að vel gerð og ítarleg umsókn eykur möguleikana á styrk. Mikilvægt er að gefa sér góðan tíma til að vinna að umsókn og gera hana sem best úr garði, þannig að árangur náist. Nauðsynlegt er að kynna sér úthlutunarreglur hverju sinni vandlega. Þeim sem búa á svæðum þar sem netsamband er hnökrótt er bent á að vinna umsóknir í ritvinnsluskjali og færa síðan inn í formið á vefnum þegar umsókn er send. Fólk er beðið að senda ekki stór viðhengi með umsóknum í gegnum vefformið og eiga afrit af umsóknargögnum. Hér er hægt að nálgast umsóknareyðublað á Word-formi sem hentugt getur verið að nota á meðan verið er að vinna í umsókn. Fylgiskjöl eru ekki send til baka.

Fyrsta styrkúthlutun fór fram í desember 2007 í Náttúrugripasafninu í Bolungarvík og önnur úthlutun í apríl 2008 á Hólmavík í tengslum við vígslu Þróunarseturs þar. Þriðja úthlutun fór fram í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði í nóvember 2008 og sú fjórða á Edinborgarhúsinu á Ísafirði í apríl 2009. Þá var úthlutað styrkjum í desember 2009 á Hlunnindasafninu á Reykhólum og vorið 2010 var athöfnin á Skrímslasetrinu í Bíldudal. Hægt er að nálgast lista yfir styrkþega hverju sinni undir tenglinum Styrkir hér til hægri.

Heimilisfang Menningarráðsins er:
Menningarráð Vestfjarða, Höfðagata 3, 510 Hólmavík.

Rafræn umsókn á vefnum

Umsóknareyðublað á Word-formi

Sýnishorn af samningseyðublaði milli styrkþega og Menningarráðs

Áfanga- eða lokaskýrsla til Menningarráðsins vegna verkefnastyrkja
 

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« September 2010 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30    
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón