Beiðni um útborgun fyrri hluta styrks

Þegar vinna við verkefni hefst er hægt að biðja um að fyrri helmingur styrks sem vilyrði hefur verið gefið fyrir sé greiddur út. Þá sendir styrkþegi yfirlýsingu til Menningarráðsins um að vinna við verkefnið sé hafin og hún sé í samræmi við umsóknina sem styrkurinn var veittur út á. Jafnframt þarf að koma til menningarfulltrúa upplýsingum um viðtakanda styrksins, bankareikning og kennitölu verkefnsins eða þess aðila sem stendur fyrir því. Í framhaldi af þessu er gerður samningur milli styrkþega og Menningarráðsins og þegar hann liggur fyrir undirritaður er fyrri hlutinn greiddur út.

Þurfi styrkþegi að endurskilgreina umfang verkefnisins þarf hann að skila inn upplýsingum um breytta áætlun og er það lagt fyrir Menningarráðið til samþykktar.  

Netfang menningarfulltrúa er menning@vestfirdir.is.

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« September 2010 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30    
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón