Leiðbeiningar um gerð styrkumsókna
Hér á eftir fara nokkrar leiðbeiningar um gerð styrkumsókna til Menningarráðs Vestfjarða, en auðvitað eiga þessar ráðleggingar við um aðrar styrkumsóknir líka.
Tæknileg atriði:
# Menningarráðið styrkir afmörkuð verkefni en ekki einstaka aðila. Vandið ykkur við afmörkunina.
# Ekki hafa þætti sem ekki eru styrkhæfir sem hluta af umsókninni, t.d. stofnkostnað vegna húsnæðis.
# Fyllið alla liði umsóknarinnar út eftir því sem kostur er, þótt um endurtekningar verði að ræða á stöku stað. Ekki láta nægja að vísa í greinargerð eða fylgiskjöl eða á milli liða í umsókninni. Mikilvægt er að öll aðalatriði og greinargóð lýsing á verkefninu komi fram í umsókninni sjálfri.
# Fáið yfirlestur á umsóknir, vönduð umsókn með fáum málfars- og stafsetningarvillum hefur auðvitað góð áhrif á þá sem þær lesa og taka ákvarðanir um úthlutun. Orðalagið þarf líka að vera þannig að menn skilji um hvað verkefnið snýst án mikillar fyrirhafnar.
# Gefið upp netfang sem er í reglulegri notkun, samskipti við styrkþega fara fram í gegnum tölvupóst.
Einstakir liðir í umsókninni:
# Sýnileg sérstaða verkefna skiptir máli. Þannig ættu menn að tína fram allt sem sýnir fram á sérstöðu verkefnisins, s.s. samvinnu, fjölbreytni, tengsl við sérstöðu svæðisins eða aðra sérstöðu. Ólíklegt er að styrkir fáist til verkefna án sýnilegrar sérstöðu, verkefna sem eru hefðbundin verkefni félaga, stofnanna eða fyrirtækja og í raun hluti af venjubundnum rekstri þeirrar.
# Ekki eru veittir styrkir til stofnkostnaðar varðandi húsnæði eða endurbætur á húsnæði úr Menningarsjóðnum. Í mörgum tilfellum eru hins vegar aðrir sjóðir og möguleikar varðandi fjármögnun á slíkum verkefnum og menningarfulltrúi veitir ráðgjöf þar um ef óskað er eftir því.
# Í umsóknarforminu er spurt hvort sótt sé um styrki á öðrum stöðum og um aðra fjármögnun. Þessar upplýsingar eru í og með nýttar af menningarfulltrúa við ráðgjöf um hvar annars staðar verkefni geta leitað eftir fjármagni. Það er jákvætt að verkefni leiti eftir fjármagni sem víðast og séu vakandi fyrir öllum möguleikum. Það er líka jákvætt að þau hafi fengið styrki annars staðar. Það eykur trú á að það takist að framkvæma verkefnið og þar með eykur það líkur á jákvæðri afgreiðslu Menningarráðsins.
