Úthlutunarreglur vegna verkefnastyrkja við fyrri úthlutun 2010:

1. Tilgangur styrkjanna er, samkvæmt samningi sveitarfélaga á Vestfjörðum, menntamálaráðuneytisins og iðnaðarráðuneytis, að efla menningarstarfsemi og menningartengda ferðaþjónustu á Vestfjörðum.

2. Umsækjendur geta verið einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir, sveitarfélög og menningarverkefni á Vestfjörðum.
 
3. Menningarráð Vestfjarða hefur ákveðið að við fyrri úthlutun ársins 2010 verði litið sérstaklega til menningarverkefna sem fela í sér eftirtaldar áherslur:
   a. Eflingu samstarfs á sviði menningarmála á svæðinu
   b. Nýsköpun í verkefnum tengdum menningu
   c. Fjölgun atvinnutækifæra í tengslum við menningarstarf á svæðinu 
   d. Eflingu menningartengdrar ferðaþjónustu og ferðatengdrar menningarstarfsemi
  
4. Menningarráðið veitir styrki til afmarkaðra menningarverkefna. Ráðið veitir ekki styrki til reksturs menningarstofnana eða félaga eða vegna stofnkostnaðar og endurbóta á húsnæði. Ekki verða veittir styrkir vegna skráningar á menningarminjum, forvörslu safngripa, hefðbundinna bæjarhátíða, almennra samkoma eða viðburða án sýnilegrar sérstöðu (s.s. tónleika og sýninga). Sama gildir um hefðbundna starfsemi íþróttafélaga og hefðbundið menningarstarf safnaða og innan skóla.

5. Styrkir Menningarráðsins geta aldrei verið hærri fjárhæð en sem nemur helmingi alls kostnaðar við verkefni.

6. Í umsókninni verður að vera greinargóð lýsing á verkefninu með verkáætlun og tímasetningum, ásamt ítarlegri fjárhagsáætlun (kostnaðar- og tekjuáætlun). Einnig þarf greinargóðar upplýsingar um aðstandendur og samstarfsaðila, ef þeir eru til staðar, og hlutverk þeirra í verkefninu.
 
7. Umsækjandi ábyrgist að fullnægjandi leyfi séu fyrir framkvæmd verkefnis og notkun heimilda ef þarf, sem og öðrum þáttum verkefnisins.

8. Menningarráð Vestfjarða og styrkþegi gera með sér sérstakan samning sem m.a. kveður á um fyrirkomulag greiðslu og eftirfylgni. Styrkþegi skal skila lokaskýrslu sem felur í sér lýsingu á framkvæmd og árangri verkefnisins, yfirlit um kostnað, auk umsagnar um verkefnið til birtingar á vefsíðu ráðsins. Eins ber styrkþega að veita Menningarráði Vestfjarða upplýsingar um framkvæmd verkefnisins og skila áfangaskýrslu ef eftir því er leitað. Útborgun styrkja er háð skilum lokaskýrslu og ef ekkert verður af verkefni eða verulegar breytingar verða á því eru styrkir afturkræfir. Miðað er við að styrkir séu greiddir út innan árs frá úthlutunardegi.

9. Menningarráð Vestfjarða heitir fyllsta trúnaði gagnvart umsækjendum varðandi umsóknir þeirra.

10. Umsóknir skulu vera á eyðublöðum frá Menningarráðinu og er mælst til þess að þær séu sendar inn rafrænt í gegnum vefsíðu Menningarráðsins eða í tölvupósti. Umsóknir sem sendar eru í pósti þurfa að vera póststimplaðar eigi síðar en síðasta umsóknardag.


Samþykkt á stjórnarfundi 25. febrúar 2010.

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« Mars 2010 »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón