Ýmsir styrkmöguleikar

Sjálfstæðir sjóðir
Sjóðir hjá ríkisvaldinu
  • Átak til atvinnusköpunar
    Styrkir á vegum Iðnaðarráðuneytis.
  • Barnamenningarsjóður
    Sjóður sem styður við margvísleg verkefni sem snúast um eflingu barnamenningu.
  • Bókmenntasjóður
    Bókmenntasjóður tók til starfa á miðju ári 2007 og hefur með höndum hlutverk Bókmenntakynningarsjóðs, Menningarsjóðs og Þýðingarsjóðs sem hafa verið lagðir niður.
  • Fornleifasjóður
    Verkefni Fornleifasjóðs er að stuðla að varðveislu og rannsóknum á fornleifum og forngripum.
  • Frumkvöðlastuðningur
    Styrkir til nýsköpunar í atvinnulífi á landsbyggðinni á vegum Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands - Impru.
  • Húsafriðunarsjóður
    Styrkir til endurbóta gamalla húsa, húsakönnunar o.fl.
  • Kvikmyndasjóður
    Sjóður sem styrkir kvikmynda- og heimildamyndargerð.
  • Listamannalaun
  • Listir og önnur menningarmál
    Styrkir til ýmissa verkefna á sviði menningarmála, þ.m.t. íþrótta- og æskulýðsmál
  • Listskreytingasjóður ríksins
    Hlutverk sjóðsins er að veita styrki til listskreytinga opinberra bygginga sem fullbyggðar voru við gildistöku laganna (1. janúar 1999), umhverfis þeirra og annarra útisvæða á forræði ríkisins og sveitarfélaga.
  • Menningarsjóður félagsheimila
    Hlutverk sjóðsins er að stuðla að menningarstarfi í félagsheimilum og öðrum þeim stöðum sem henta menningarstarfi. Sjóðurinn skal stuðla að leikstarfsemi, tónleikahaldi, listsýningum, bókmenntakynningum og hvers konar annarri menningarstarfsemi. Menningarsjóðsnefnd úthlutar styrkjum úr sjóðnum fjórum sinnum á ári. Umsóknarfrestir eru 15. febrúar, 15. maí, 1. september og 15. nóvember ár hvert.
  • Menningarsjóður Finnlands og Íslands
  • Safnasjóður
    Veitir bæði rekstrarstyrki til viðurkenndra safna og verkefnastyrki. Umsóknarfrestur rennur út að hausti ár hvert.
  • Skrefi framar
    Ráðgjafaverkefni fyrir fyrirtæki á landsbyggðinni þar sem Impra nýsköpunarmiðstöð greiðir niður ráðgjafakostnað í verkefninu um allt að 600 þús. kr
  • Styrkir til atvinnuleikhúsa
    Leiklistarráð gerir tillögu til menntamálaráðuneytisins um úthlutun fjár sem veitt er í fjárlögum til stuðnings atvinnuleikhópum. Ráðuneytið veitir styrki til einstakra verkefna eða samfellds starfs til lengri tíma. Úthlutað er einu sinni á ári og rennur umsóknarfrestur út í október ár hvert.
  • Styrkir til starfsemi áhugaleikfélaga
    Styrkir til leiksýninga á íslenskum eða erlendum verkum, skemmtidagskrám eða söngleikjum og einnig til vandaðra bókmenntakynninga og námskeiðahalds. Umsóknarfrestur til 10. júní ár hvert.
  • Sænsk-íslenski samstarfssjóðurinn
    Til samstarfs á breiðum grundvelli; til vísinda, félagsstarfs, kennslumála og fleira, en þó einkum til menningarmála. Verkefnastyrkir og ferðastyrkir.
  • Tónlistarsjóður
    Sjóður sem einbeitir sér að því að efla íslenska tónlist og stuðla að kynningu á íslenskum tónlistarmönnum og tónsköpun þeirra.
  • Æskulýðssjóður
    Umsóknarfrestur í Æskulýðssjóð er fjórum sinnum á ári, 1. febrúar, 1. apríl, 1. september og 1. nóvember og er umsóknarfrestur auglýstur hverju sinni.
  • Þróun í starfandi fyrirtækjum
    Styrkir á vegum Nýsköpunarmiðstöðvar til að þróa vöru og þjónustu á markað.

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« Mars 2010 »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón