miðvikudagurinn 9. september 2009

Styrkir Átaks til atvinnusköpunar til nýsköpunarverkefna

Auglýst hefur verið eftir umsóknum um styrki Iðnaðarráðuneytisins undir yfirskriftinni Átak til atvinnusköpunar. Átak til atvinnusköpunar veitir styrki til nýsköpunarverkefna og markaðsaðgerða starfandi frumkvöðla- og nýsköpunarfyrirtækja. Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur umsjón með verkefninu fyrir hönd iðnaðarráðuneytisins.


Styrkir úr Átakinu eru veittir tvisvar á ári og er næsti umsóknarfrestur 29. september næstkomandi. Umsóknir til Átaksins voru 230 vorið 2009. Þá var tæplega 44 milljónum úthlutað til 56 verkefna og voru styrkupphæðirnar frá 195.000 til 2.000.000 króna.

Nánar um Átak til atvinnusköpunar og umsóknareyðublað 

föstudagurinn 29. maí 2009

Kraftur í vestfiskri menningu

Það var mikið um dýrðir í Edinborgarhúsinu á Ísafirði í gær þegar úthlutað var styrkjum til menningarverkefna á Vestfjörðum. Þetta var fjórða úthlutun Menningarráðs Vestfjarða og var nú úthlutað samtals 21 milljón til 48 verkefna af margvíslegum toga. Framlög til einstakra verkefna voru á bilinu 50 þúsund til 1,4 milljón og voru verkefni sem fengu milljón eða meira óvenjulega mörg að þessu sinni eða 7 talsins. Margvíslegt samstarf og samvinna milli einstaklinga og stofnanna, listgreina og svæða, setti svip á úthlutunina að þessu sinni og kraftmikil samstarfsverkefni eru býsna áberandi í hópi þeirra verkefna sem fengu styrki. Næst verður auglýst eftir umsóknum í haust.    

Yfirlit yfir verkefnastyrki vorið 2009
  

Útgáfa á hljóðdisk, hönnun nýs hljóðfæris og sérkennileg tónleikaferð (Mugiboogie ehf) - 1.400.000.-
Dynjandi sem kveður að (Eaglefjord - Gallerí Dynjandi) - 1.400.000.-
Völundarhús, upplifunar- og skynjunarleikhús á Patreksfirði (TOS ungmennaskipti) - 1.400.000.-
Margmiðlunarborð og leiklestur skrímslasögunnar (Félag áhugamanna um skrímslasetur) - 1.400.000.-  

Tónlistarhátíðin Við Djúpið 2009 (Við Djúpið, félag) - 1.000.000.-
Act Alone 2009 (Act Alone leiklistarhátíð) - 1.000.000.-
Skjaldborg ´09 (Skjaldborg - hátíð íslenskra heimildamynda) - 1.000.000.-  

Rokk fyrir firði og fólk! (Hljómsveitin Reykjavík! og Engin miskunn ehf) - 700.000.-
Síðasti dagur Sveins skotta (Kómedíuleikhúsið og Lýðveldisleikhúsið) - 700.000.-
Vestur á fjörðum (Janus Bragi Jakobsson, Tinna Ottesen og Mugiboogie ehf) - 700.000.-  

Leiðsögumaðurinn (Félagið Hús og fólk) - 500.000.-
Smiðjan á Vatneyri í máli og myndum (Sjóræningjahúsið ehf) - 500.000.-
Listviðburðir í Edinborgarhúsi (Edinborgarhúsið á Ísafirði) - 500.000.-
Kaktus (Kómedíuleikhúsið) - 500.000.-
Atvinnu- og menningarmálasýning á Ströndum (Þróunarsetrið á Hólmavík) - 500.000.-
Kvöldvökur á Víkingasvæðinu á Þingeyri. Fræðslu- og skemmtidagskrá (Félag áhugamanna um víkingaverkefni á slóðum Gísla Súrssonar) - 500.000.-  

Bjarni á Fönix (Ársæll Níelsson) - 400.000.-
Einstök sýning - Vestfirskir einfarar (Marsibil G. Kristjánsdóttir) - 400.000.-
NV Vestfirðir (Ágúst G. Atlason) - 400.000.-
Ísafjörður - húsin á Eyrinni (Vesturferðir ehf) - 400.000.-
Kolbrúnarskáldið kemur í dalinn (Gautshamar ehf) - 400.000.-

Listsýningar á vegum Félags handverksfólks á Vestfjörðum (Félag handverksfólks á Vestfjörðum) - 350.000  

Tónlistardagurinn mikli (Tónlistarfélag Ísafjarðar) - 300.000.-
Gullkistan (Byggðasafn Vestfjarða) - 300.000.-
Lífróður á Strandir: listasmiðja - málþing - sýning (Þjóðfræðistofa) - 300.000.-
Matur- og menning í Vesturbyggð - Steinbíturinn 2009 (Samstarfshópur um mat- og menningu í Vesturbyggð) - 300.000.-
Sérsýning um Alfreð Halldórsson - sauðfjárbónda á Kollafjarðarnesi (Sauðfjársetur á Ströndum) - 300.000.-
Blús á Vestfjörðum (Guðmundur Hjaltason) - 300.000.-
Leitin að Gísla - lokaáfangi heimildamyndar (Þjóðfræðistofa) - 300.000.-  

"Dívan í Djúpinu" - einsöngshljómdiskur (Ingunn Ósk Sturludóttir) - 250.000.-
Fjallabræður - hljómplata (Fjallabræður) - 250.000.-

Norrænir samspilsdagar 2009 (Félagsmiðstöðin OZON og Tónskólinn á Hólmavík) - 200.000.-
Leiðir til að tengja sögu Djúpsins við menningartengda ferðaþjónustu (Ævintýradalurinn ehf) - 200.000.-
Árlegt Húmorsþing Þjóðfræðistofu - Vetrarhátíð á Ströndum (Þjóðfræðistofa) - 200.000.-
Kaupstaðirnir þrír á Ísafirði - tímarnir þrennir (Ómar Smári Kristinsson) - 200.000.-
Náttúrubörn á Ströndum - fróðleiksfundir og miðlun (Sauðfjársetur á Ströndum) - 200.000.-
DALIR og HÓLAR - handverk 2009 (Björn Samúelsson) - 200.000.-
Sumarið í Hömrum (Tónlistarfélag Ísafjarðar) - 200.000.-
Strandhögg - Landsbyggðaráðstefna sagn- og þjóðfræðinga (Þjóðfræðistofa) - 200.000.-  

Sjóferðir, sýning í Skrímslasetrinu (Minjasafn Egils Ólafssonar) - 100.000.-
Ég stend á skíði ... (Rakel Sævarsdóttir) - 100.000.-
Stefnumót safna, sögusýninga og setra á Vestfjörðum (Byggðasafn Vestfjarða og Safn Jóns Sigurðssonar) - 100.000.- Photography exhibition in Djúpavík (Claus Sterneck) - 100.000.-
Sumarmarkaður Vestfjarða 2009 - menningarviðburðir (Samstarfshópur um sumarmarkað Vestfjarða) - 100.000.-
Klæði og kjarna konur á Vestfjörðum - ferðasýning (Þjóðbúningafélag Vestfjarða) - 100.000.-  

Undirbúningur að hönnun lita og sögubókar fyrir börn (Raggagarður - Fjölskyldugarður Vestfjarða) - 50.000.-
Sjóvettlingar, suða og sulta (Minjasafn Egils Ólafssonar) - 50.000.-
Hljóðverk fyrir lýsistank og örnefni (Rósa Sigrún Jónsdóttir) - 50.000.-

mánudagurinn 25. maí 2009

Styrkir Menningarráðs afhentir

Fyrri úthlutun Menningarráðs Vestfjarða á árinu 2009 fer fram í Edinborgarhúsinu á Ísafirði nú á fimmtudaginn 28. maí og hefst athöfnin kl. 16:00. Verða þar afhent vilyrði um styrki frá Menningarráði Vestfjarða, en alls eru veittir styrkir til 48 verkefna að þessu sinni á bilinu 50 þúsund til 1,4 milljónir, samtals að upphæð 21 milljón.

Umsóknir sem bárust að þessu sinni voru 89 og var samtals beðið um rúmar 72 milljónir í verkefnastyrki. Styrkirnir fara til fjölbreyttra verkefna sem sýna glöggt þann kraft, frumkvæði og nýsköpun sem einkennir vestfirskt menningarlíf.

Verkefni sem byggjast á samstarfi ólíkra aðila eru áberandi í hópi þeirra verkefna sem styrkt eru að þessu sinni, en sérstök áhersla var lögð á samvinnu og samstarf við úthlutun.

Öllum styrkumsóknum sem bárust hefur verið svarað í tölvupósti á uppgefin netföng með niðurstöðu hvað varðar einstakar umsóknir. Heildarlisti um styrkt verkefni verður birtur á vef Menningarráðsins og sendur fjölmiðlum eftir athöfnina á fimmtudag. Menningarráð Vestfjarða mun næst auglýsa eftir umsóknum um styrki í haust.

Athöfnin er opin öllum og sveitarstjórnarmenn og þeir sem standa í eldlínunni í menningarstarfi á Vestfjörðum eru sérstaklega boðnir velkomnir.

Á dagskrá eru erindi og afhending styrkja og í lokin á þessari formlegu athöfn verður boðið upp á léttar veitingar.

miðvikudagurinn 18. mars 2009

Auglýst eftir styrkumsóknum

Menningarráð Vestfjarða hefur nú auglýst eftir styrkumsóknum vegna fyrri úthlutunar á árinu 2009 til menningarverkefna á Vestfjörðum. Um er að ræða styrki til afmarkaðra menningarverkefna og eru umsóknir bornar saman á samkeppnisgrundvelli, þannig að fara þurfa saman áhugaverð verkefni og góðar umsóknir til að líkur séu á að styrkur fáist.

Menningarráð Vestfjarða hefur skilgreint ákveðna áhersluþætti við hverja úthlutun til þessa og við fyrri úthlutun 2009 verður litið sérstaklega til menningarverkefna sem fela í sér eftirtaldar áherslur:
   a. Nýsköpun á sviði lista og menningarstarfs.
   b. Verkefni sem miða að fjölgun starfa.
   c. Samstarf milli menningarstofnanna, byggðarlaga eða listgreina og uppsetning viðburða á fleiri en einum stað. 
   d. Verkefni sem stuðla að samvinnu atvinnumanna í listum og leikmanna.
   e. Verkefni sem miða að því að listnemar eða ungir listamenn frá Vestfjörðum komi í auknum mæli að listsköpun og menningarstarfi í fjórðungnum.    
   f.  Viðamikil samstarfsverkefni sem byggja á samstarfi þriggja eða fleiri aðila og leiða til samstarfs milli ólíkra svæða á Vestfjörðum.


Umsóknarfrestur er til föstudagsins 17. apríl og er rafrænt umsóknarblað, leiðbeiningar og úthlutunarreglur að finna hér á vef Menningarráðsins. Allar nánari upplýsingar gefur menningarfulltrúi Vestfjarða, Jón Jónsson, í síma 891-7372 og netfanginu menning@vestfirdir.is.

þriðjudagurinn 3. febrúar 2009

Aldrei fór ég suður fær styrk úr tónlistarsjóði

Tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður fékk 200.000 króna styrk úr tónlistarsjóði menntamálaráðuneytisins. Ísfirska hljómsveitin Reykjavík! fékk einnig 200.000 króna styrk fyrir tónleikaferðalag hljómsveitarinnar um Evrópu. Tónlistarsjóði bárust 128 umsóknir frá 118 aðilum. Heildarfjárhæð umsókna nam 114.192.969 kr. Veittir eru styrkir til 79 verkefna að heildarupphæð 21.145.000. Að auki verða greiddir út styrkir skv. 9 samningum að upphæð kr. 19.500.000. Samningar þessir voru gerðir í ársbyrjun 2008 og gilda til þriggja ára. Heildarúthlutun tónlistarsjóðs á fyrri hluta árs 2009 nemur þar af leiðandi kr. 40.645.000. Á fjárlögum 2009 eru 54 millj. kr. til tónlistarsjóðs.

Þar með er hátíðin Aldrei fór ég suður komin með 1,1 milljón í styrk fyrir næstu hátíð en fyrir höfðu skipuleggjendur hennar fengið tvo styrki fyrir hátíðina, 200.000 krónur frá menningarmálanefnd Ísafjarðarbæjar og 700.000 frá Menningarráði Vestfjarða.

Þessi frétt er afrituð af www.bb.is.
laugardagurinn 10. janúar 2009

Sænsk-íslenski samstarfssjóðurinn - frestur til 1. feb.

Árið 2009 verða veittir úr Sænsk-íslenska samstarfssjóðnum annars vegar ferðastyrkir og hins vegar styrkir til að styðja íslenska þátttakendur í sænsk-íslenskum og norrænum verkefnum. Markmið sjóðsins er að stuðla að auknu samstarfi Svíþjóðar og Íslands á sviði vísinda, menntunar og menningar.


Um styrki þessa skal sótt á sérstökum eyðublöðum sem fást í menntamálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík og á skrifstofu Norræna félagsins í Stokkhólmi, Box 127 07, S-112 94 Stockholm. Umsóknareyðublöð er einnig að finna á vefslóðinni www.norden.se. Umsóknir skulu sendar á skrifstofu Norræna félagsins í Stokkhólmi.


Umsóknir skal stíla á stjórn Sænsk-íslenska samstarfssjóðsins/Svensk-isländska samarbetsfonden. Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2009 og gildir póststimpill. Styrkjunum verður úthlutað í lok mars.

laugardagurinn 10. janúar 2009

Fornleifasjóður - frestur til 9. febrúar 2009

Fornleifasjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum skv. 24. gr. þjóðminjalaga nr. 107/2001. Veittir verða styrkir til verkefna sem stuðla að rannsóknum og varðveislu á fornleifum og forngripum. Umsóknarfrestur er til 9. febrúar 2009. Á fjárlögum 2009 eru 22,5 milljónir króna til ráðstöfunar. Úthlutunarreglur sjóðsins nr. 73/2004 eru birtar í Stjórnartíðindum og á vef menntamálaráðuneytis, menntamalaraduneyti.is.


Umsóknir, í fjórum eintökum, sendist stjórn Fornleifasjóðs, menntamálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík.

þriðjudagurinn 6. janúar 2009

Vöruþróun á Vestfjörðum ýtt úr vör

Verkefnið Vöruþróun á Vestfjörðum fer af stað á nýju ári á vegum Impru á Nýsköpunarmiðstöð. Verkefnið er ætlað starfandi fyrirtækjum á Vestfjörðum sem vilja vinna að nýsköpun, vexti eða umbótum í starfsemi sinni. Markmið verkefnisins er meðal annars að þróa þjónustu eða vöru á innanlandsmarkað eða til útflutnings, að veita faglegan og fjárhagslegan stuðning við þróun á þjónustu eða vöru og að koma samkeppnishæfri vöru eða þjónustu á markað innan 18 mánaða frá upphafi verkefnisins. Umsóknarfrestur er til mánudagsins 12. janúar næstkomandi.

Nánar er hægt að kynna sér verkefnið á heimasíðu Impru; www.impra.is eða hafa samband við Örnu Láru Jónsdóttur eða Sigríði Kristjánsdóttur á skrifstofu Impru á Ísafirði í síma 450-4050.

Fréttin er afrituð af www.bb.is.

mánudagurinn 29. desember 2008

Bolvísk verkefni fá fé af fjárlögum

Fjárlaganefnd Alþingis berst árlega mikill fjöldi umsókna um fjárlagastyrk. Fjöldi slíkra styrkbeiðna hefur farið vaxandi ár frá ári. Ekki er síst um að ræða margskonar menningarstarf og uppbyggingu menningarmannvirkja. Bolvíkingar hlutu náð fyrir augum nefndarinnar að þessu sinni sem jafnan áður og samþykkti Alþingi meðfylgjandi styrki til verkefna í Bolungarvík

Hólskirkja, 3,5 milljónir vegna endurbyggingar.
Einarshús vegna endurbyggingar, 3,5 milljónir kr.
Miðstræti 3, 0,5 milljónir vegna endurbyggingar

Allar ofangreindar fjárhæðir fara í gegn um Húsafriðunarnefnd ríkisins vegna endurgerðar merkra gamalla húsa. Sambærilegir styrkir eru veittir vegna húsa um land allt.

Þá fékk Ósvörin 5 milljón króna styrk á fjárlögum að þessu sinni.

Þess má líka geta að á meðal þeirra báta sem fengu styrk vegna endurgerðar var mótórbáturinn Lóa, sem Ragnar Jakobsson er eð vinna að og svo einir fjórir aðrir bátar með einkennisstafina ÍS. Það eru Fengsæll ÍS 83, Jóhanna ÍS 159, Sædís ÍS 67 og Tóti ÍS 10

Náttúrustofa Vestfjarða í Bolungarvík fær 6,5 milljóna sérstakt framlag til rannsókna. Þessi upphæð kemur til viðbótar við þá fjárhæð sem rennur til stofnunarinnar af fjárlögum. Er þetta sambærilegur styrkur og Náttúrurstofan hefur notið, rétt eins og aðrar náttúrurstofur í landinu.

Fræða eða Háskólasetrið í Bolungarvík fékk ennfremur 5 m. króna framlag líkt og önnur sambærileg fræða og háskólasetur sem starfa innan vébanda Háskóla Íslands. Í upphaflegum breytingartillögum sem fram komu við 2. umræðu var ekki gert ráð fyrir neinni upphæð til þessara þátta, en meirihluti fjárlaganefndar breytti því í meðförum sínum.

Fréttin er afrituð af fréttavefnum www.vikari.is.

mánudagurinn 24. nóvember 2008

Styrkir Menningarráðs afhentir á Patreksfirði

Styrkir Menningarráðs Vestfjarða við síðari úthlutun á árinu 2008 voru afhentir við hátíðlega athöfn í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði á föstudaginn. Alls voru veittir 52 styrkir að upphæð samtals 17,4 milljónir og voru einstakir verkefnastyrkir á bilinu frá 50 þúsund til 1 milljón. Styrkirnir fóru til fjölbreyttra verkefna sem sýna glöggt þann kraft og frumkvæði sem býr í vestfirsku menningarlífi, en margvísleg útgáfuverkefni voru þó áberandi við úthlutun að þessu sinni, enda var lögð sérstök áhersla á að styrkja slík verkefni við þessa úthlutun. Átti það bæði við um útgáfu bóka og tónlistar. Næst verður auglýst eftir styrkumsóknum snemma á nýju ári, en samtals hefur Menningarráð Vestfjarða nú úthlutað 55 milljónum til 151 verkefnis við þrjár úthlutanir.

Listi um alla styrkina við síðari úthlutun ársins 2008 er svohljóðandi:

Strandagaldur ses - 1.200.000.- (samtals, 2 verkefni)
     Heimildamynd um galdrafárið í Trékyllisvík - 1.000.000.-
     Barnarímur Ásu Ketilsdóttur - 200.000.-
Alþýðusamband Vestfjarða: Saga verkalýðshreyfingar á Vestfjörðum 1906-2006 - 1.000.000.-
Sögunefnd byggðasögu Strandamanna: Strandabókin byggðasaga - 1.000.000.-
Útgáfufélag Búnaðarsambands Vestfjarða: Vestfjarðarit IV (Vestur-Barðastrandarsýsla) - 700.000.-
Aldrei fór ég suður, félag: Aldrei fór ég suður - 700.000.-
Arnarsetur Íslands: Arnarsetur - hönnun og undirbúningur sýningar - 700.000.-
Kómedíuleikhúsið og Act Alone leiklistarhátíð - 700.000.- (samtals, 2 verkefni)
     Auðun og ísbjörninn - leiksýning - 400.000.-
     Íslenskir einleikir - Söguleg ferðasýning - 300.000.-

Íþróttafélagið Höfrungur Þingeyri: Söngleikurinn Dragedukken - 500.000.- 
Byggðasafn Vestfjarða: Saltfiskuppskriftir og hljómdiskur - saga og menning - 500.000.- 
Menningarmiðstöðin Edinborg: Listviðburðir Menningarmiðstöðvarinnar júlí-desember 2008 - 500.000.-
Snjáfjallasetur - 500.000.- (samtals, 2 verkefni)
     Útgáfa á kveðskap frá Snæfjalla- og Grunnavíkurhreppum úr segulbandasafni Árnastofnunar - 200.000.-
     Sýning um skólahald í heimangönguskólanum að Lyngholti á Snæfjallaströnd - 300.000.-
Sauðfjársetur á Ströndum - 500.000.- (samtals, 2 verkefni)
     Líf og starf ráðunautar - sérsýning um Brynjólf Sæmundsson - 300.000.-
     Útgáfa fræðsluhefta um sauðfjárbúskap og bændamenningu - 200.000.-

Sjóræningjahúsið: Sögur úr grjóti - 400.000.-
Vestfirðir á miðöldum: Vatnsfjarðarsaga - 400.000.-
Leikfélagið Baldur Bíldudal: Bíldudals bacalao - sumarleikhús - 400.000.-
Óstofnað félag um Sögusetur og söguslóð Spánverjavíganna 1615: Spánverjavígin 1615. Sögusetur - söguslóð - 400.000.-
Kvenfélagið Ósk: Safn sem hýsir sögu kvennamenningar, lista og handverks - 400.000.-
Brúðuleikhúsið Dúkkukerran: Leikbrúðusýningin Þjóðbrók - 400.000.-
Félag áhugamanna um skrímslasetur: Skrímslasögur lifna við - 400.000.-
Tónlistarfélag Ísafjarðar: Afmælistónleikaröð Tónlistarfélags Ísafjarðar 2008-9 - 400.000.-
EagleFjord ehf. og Gallerie Dynjandi - 400.000.- (samtals, 2 verkefni)
     Bíldudalsstein - 200.000.-
     Vestfirðir að vetri - 200.000.-
 
Bjarni Ómar Haraldsson - 350.000.- (samtals, 2 verkefni).
     Fyrirheit, hljómplötuútgáfa - 250.000.-
     Útgáfutónleikar og tónleikaröð - 100.000.-
Vesturbyggð: Merkingar eyðibýla í Vesturbyggð - 300.000.-
Þjóðfræðistofa: Leitin að Gísla - annar áfangi heimildamyndar - 300.000.-
Passport Kvikmyndir: Norð Vestur - 300.000.-
Listaskóli Rögnvaldar Ólafssonar: Námskeið - leiklist og söngleikur - 300.000.-
Sögufélag Barðastrandasýslu: Endurútgáfa Árbókar Barðastrandasýslu - 300.000.-
Félagið Hús og fólk: Á mölinni: Textar og teikningar - 300.000.-

Litli leikklúbburinn: Úti er alltaf að snjóa - Leik- og söngdagskrá - 250.000.-
Þórarinn Hannesson: Þorpið - ljóðaleikur - 250.000.-
Birgir Örn Sigurjónsson: BIX - hljómdiskur - 250.000.-
Lilja Sigurðardóttir: Hver er ég? - Útgáfa á geisladiski með frumsömdum lögum og textum - 250.000.-
Þröstur Jóhannesson: Vorið góða - 250.000.-
Kvennakórinn Norðurljós: Útgáfa hljómdisks með Kvennakórnum Norðurljósum - 250.000.-
Kristján G. Jóhannsson: Sýning um skipasmíðar Marsellíusar Bernharðssonar - 250.000.-
Guðfinna M. Hreiðarsdóttir: Útgáfa á úrvali ljóða skáldkonunnar Höllu Eyjólfsdóttur frá Laugabóli - 250.000.-
Framför - Styrktarsjóður skíðamanna á Ísafirði: Ísfirskir Ólympíufarar - 250.000.-
Þjóðbúningafélag Vestfjarða: Dagatal Þjóðbúningafélags Vestfjarða - 200.000.-

Ómar Smári Kristinsson: Teikningar af vestfirskum byggðum - útgáfa handgerðra dagatala - 100.000.-
Fornleifafélag Barðstrendinga og Dalamanna: Kuml í Berufirði - rafræn miðlun - 100.000.-
Thorp ehf: Hnyðjur - ljóðabók Þorgeirs Sigurðssonar frá Stóra Fjarðarhorni - 100.000.-
Lisbet Harðardóttir: Búrið - listagallerí - 100.000.-
Óbeisluð fegurð: Óbeilsuð fegurð, útgáfa heimildarmyndar á DVD - 100.000.-
Hollvinafélag Gvendarlaugar hins góða: Gvendarlaug hins góða - Byggingarsaga sundlauga í Bjarnarfirði og saga Sundfélagsins Grettis - 100.000.-
Skiptá, áhugamannafélag um menningu og listir: Tónleikahald á Vestfjörðum - 50.000.-
Laufey Eyþórsdóttir: Myndlistarsýningar í Ísafjarðarbæ - 50.000.-

Fyrri síða
1
2345Næsta síða
Síða 1 af 5
Eldri færslur

Valmynd

Fréttirnar

Póstlisti


Atburðir

« Mars 2010 »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      
Næstu atburðir

Myndirnar

Vefumsjón